Taka undir áhyggjur af ástandi leikskóla borgarinnar

Fréttir|31. ágúst 2016

Félag leikskólakennara og stjórn 1. deildar Félags leikskólakennara taka undir málflutning leikskólastjórnenda í Reykjavík vegna niðurskurðar og lýsa þungum áhyggjum af ástandinu í leikskólum borgarinnar. Þetta er meðal þess sem kemur fram á ályktun stjórna 1. deildar Félags leikskólakenna og Félags leikskólakennara sem send var borgarstjórn Reykjavíkur í gær, 30. ágúst 2016. 

Ályktunin hljóðar svo: 

Stjórn 1. deildar Félags leikskólakennara og stjórn Félags leikskólakennara tekur undir með leikskólastjórnendum í Reykjavík og lýsa yfir þungum áhyggjum með ástandið í leikskólum borgarinnar. Leikskólastjórar hafa þurft í mörg ár að herða ólarnar og hefur verðið sparað í öllum þáttum er snúa að leikskólastarfinu. Frekari sparnaður kemur óhjákvæmilega niður á gæðum leikskólanna. Leikskóla í Reykjavík vantar fleiri leikskólakennara og erfiðlega gengur að ráða í lausar stöður. Stöðugur niðurskurður undanfarinna ára skapar mikið álag á starfsfólk leikskólanna. Það er öllum ljóst að auka verði fjármagn til leikskólanna til þess að þeir geti sinnt lögboðnu hlutverki sínu.
Við skorum á meirihlutann að láta af frekari sparnaðaraðgerðum og standa vörð um verðmæti okkar allra, börnin og menntun þeirra.

Virðingarfyllst,
stjórn 1. deildar Félags leikskólakennara og stjórn Félags leikskólakennara