Tæpur fjórðungur hefur kosið í formannskjöri FG

Fréttir|5. maí 2022

Þrjú bjóða sig fram til formanns Félags grunnskólakennara. Atkvæðagreiðslu lýkur á laugardag.

Alls höfðu 24,24 prósent félagsmanna FG greitt atkvæði í formannskosningu félagsins á hádegi í dag. Atkvæðagreiðslan hófst á mánudag og stendur til klukkan 14 á laugardag, 7. maí. 

 

 

Þrjú eru í framboði til formanns

Um atvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þegar komið er inn á Mínar síður sést kosningin.

  • Smelltu á Atkvæðagreiðsla um formann FG 2022 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
  • Merktu við þann frambjóðanda sem þú vilt kjósa sem formann FG.
  • Smelltu að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.

Hægt er að kjósa aftur, með því ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörnefndar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is,  sími: 595 1111.

 

Frambjóðendur til formanns; Mjöll Matthíasdóttir, Pétur V. Georgsson og Þorgerður Laufey Diðriksdóttir.