Tæplega þrjátíu bjóða sig fram hjá FG

Fréttir|5. maí 2026
Fg Kosning

Frestur til að bjóða sig fram til trúnaðarstarfa hjá Félagi grunnskólakennara, fyrir tímabilið 2026-2030, rann út á hádegi.

Alls tilkynntu 28 félagar í Félagi grunnskólakennara um framboð til trúnaðarstarfa í þremur nefndum, sem munu starfa á tímabilinu 2026-2030. Um er að ræða skólamálanefnd, samninganefnd og kjörnefnd félagsins. 

Stjórnarkjör FG fór fram í byrjun mars og munu eftirtalin skipa stjórn félagsins 2026-2030: Anna Guðrún Jóhannesdóttir, Álfhildur Leifsdóttir Örlygur Þór Helgason, Sigurður Freyr Bibbi Sigurðarson, Kolbrún Guðmundsdóttir og Geirlaug Ottóasdóttir. Varastjórn munu skipa Kristín Björnsdóttir, Fjóla Margrét Hrafnkelsdóttir, Íris Árný Magnúsdóttir, Hildur Sigfúsdóttir og Hreiðar Oddsson. 

Mjöll Matthíasdóttir, formaður FG, var sjálfkjörin í embætti formanns 2026-2030. 

Frambjóðendur til samninganefndar

  • Davíð Már Sigurðsson, Rimaskóla
  • Eva S. Káradóttir, Grunnskóla Þorlákshafnar
  • Eygló Karlsdóttir, Grundaskóla
  • Hreiðar Oddsson, Álfhólsskóla
  • Hulda Guðný Jónsdóttir, Síðuskóla
  • Íris Árný Magnúsdóttir, Vallaskóla
  • Margrét Össurardóttir, Hvaleyrarskóla
  • Sigfús Aðalsteinsson, Giljaskóla
  • Siggerður Ólöf Sigurðardóttir, Grunnskóla Rangárþings ytra
  • Þóra Kristinsdóttir, Austurbæjarskóla
  • Þórey Björk Hjaltadóttir, Ölduselsskóla

Samninganefnd er skipuð fimm aðalfulltrúum og fimm til vara. 

 

Frambjóðendur til skólamálanefndar

  • Andri Már Bjarnason, Álftamýrarskóla
  • Árný Jóna Stefánsdóttir, Kópavogsskóla
  • Fjóla Margrét Hrafnkelsdóttir, Egilsstaðaskóla
  • Grétar Birgisson, Hvaleyrarskóla
  • Guðbjörg Íris Atladóttir, Rimaskóla
  • Gunnar Bessi Þórisson, Engjaskóla
  • Gunnhildur Björnsdóttir, Grundaskóla
  • Hólmfríður Arna Þórisdóttir, Skarðshlíðarskóla
  • Hrefna Jónsdóttir, Reykhólaskóla
  • Laufey Broddadóttir, Mýrarhúsaskóla
  • Pollý Rósa Brynjólfsdóttir, Brekkuskóla
  • Þorbjörg Ólafsdóttir, Síðuskóla
  • Þóre Björk Hjaltadóttir, Ölduselsskóla

Skólamálanefnd er skipuð 11 fulltrúum, sex aðalfulltrúum og sex til vara.

 

Frambjóðendur til kjörnefndar

  • Erla Rán Kjartansdóttir, Brekkuskóla
  • Lilja Margrét Möller, Austurbæjarskóla
  • Páll Erlingsson, Áslandsskóla
  • Tinna Ósk Björnsdóttir, Vallaskóla
  • Þórey Björk Hjaltadóttir, Ölduselsskóla

Kjörnefnd er skipuð sex fulltrúum, þremur aðalfulltrúum og þremur til vara. 

 

Kosningarnar

Atkvæðamagn ræður því hverjir hljóta kjör sem aðalfulltrúar og hverjir verða varafulltrúar. 

  • Atkvæðagreiðsla hefst klukkan 12 á hádegi þriðjudaginn 19. maí
  • Atkvæðagreiðslu lýkur klukkan 12 á hádegi föstudaginn 22. maí.