Tæp ellefu prósent höfðu greitt atkvæði á hádegi

Fréttir|3. maí 2022

Kjörsókn í formannskjöri Félags grunnskólakennara var tæp ellefu prósent á hádegi í dag.

Alls höfðu 10,93 prósent félagsmanna í Félagi grunnskólakennara greitt atkvæði í formannskjöri klukkan 12 í dag. 

Atkvæðagreiðslan hófst klukkan 14 í gær og stendur til klukkan 14 næstkomandi laugardag. 

Þrjú eru í framboði til formanns

Um atvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þegar komið er inn á Mínar síður sést kosningin.

  • Smelltu á Atkvæðagreiðsla um formann FG 2022 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
  • Merktu við þann frambjóðanda sem þú vilt kjósa sem formann FG.
  • Smelltu að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.

Hægt er að kjósa aftur, með því ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörnefndar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is,  sími: 595 1111.