Tæp 43% höfðu greitt atkvæði á hádegi
Fréttir|14. apríl 2021

Atkvæðagreiðslu um samning FF og FS lýkur á hádegi fimmtudaginn 15. apríl.
Alls höfðu 42,99% félagsmanna í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum greitt atkvæði um nýjan kjarasamning á hádegi í dag.
Atkvæðagreiðslan hófst á hádegi síðastliðinn föstudag og stendur til hádegis næstkomandi fimmtudags, 15. apríl.
Félagsfólk er hvatt til að kynna sér samninginn og greiða atkvæði.
Hægt að horfa á kynningarfund um kjarasamninginn á Youtube sem fór fram á Teams síðastliðinn miðvikudag. Þá er að finna ýmsar upplýsingar varðandi samninginn og launareiknivél í Rauða Eplinu sem var sent félagsmönnum í liðinni viku.