Tæknitröll og íseldfjöll

Með bókinni Tæknitröll og íseldfjöll opnar Dr. Bryony Mathew, sendiherra Breta á Íslandi, heilan heim af spennandi, ólíkum og fjölbreyttum framtíðarstörfum fyrir börnum. Sérstök áhersla er á inngildingu og fjölbreytileika. Mathew kynnti verkefnið fyrir Magnúsi Þór Jónssyni, formanni Kennarasambandsins í dag.
Bryony Mathew, sem er sendiherra, barnabókarithöfundur og doktor í taugavísindum, gaf út bókina Tæknitröll og íseldfjöll með það að markmiði að opna augu barna fyrir starfsmöguleikum framtíðarinnar og sýna þeim hvaða störf verða meðal þeirra áhugaverðustu og mikilvægustu hér á landi á næstu 10 til 20 árum. En eins og Mathew tekur fram í bókinni munu mörg grunnskólabörn dagsins í dag vinna við störf sem ekki eru enn til í heimi sem tekur svo örum breytingum.
Allt er hægt
Í bókinni er að finna starfstitla eins og hlutanetshönnuður, samvinnuþjarkamiðlari, lagareldistæknir og lýðheilsuverndari í bland við hefðbundnari heiti eins og grunnskólakennari, heilaskurðlæknir og sálfræðingur.
Markmiðið er að öll börn geti samsamað sig með einhverri persónu bókarinnar eða einhverju í fari einhvers karakters. Persónurnar eru allar með ólíkan bakgrunn og reynslu og glíma við mismunandi áskoranir eins og til dæmis lesblindu, astma, geðrænan vanda og flogaveiki, en hafa þrátt fyrir það fundið sér frábæra vinnu. Þá er að finna lítil merki eða tákn víðs vegar í bókinni sem gefa vísbendingu um falin sérkenni persóna eins og innilokunarkennd, að vera á einhverfurófinu, vera trans eða hafa neyðst til að yfirgefa heimaland sitt vegna stríðsátaka. Tekið er fram að slík séreinkenni séu það sem geri fólk einstakt og breyti því ekki að öll séum við jöfn.
Bókin er svo skreytt ýmsu áhugaverðu aukaefni eins og umfjöllun um heilann og starfsemi hans, hugarfar grósku og hugmyndum fyrir börn um hvernig hægt er að ná árangri eða hverju væri gaman að áorka í framtíðinni.
Með verkefninu vonast Mathew til að vekja áhuga barna á að kynna sér þau stóru tækifæri sem bíða þeirra, styrkja sjálfstraust þeirra þannig að þau viti að þau geti gert hvað sem þau vilja og að framtíðin sé þeirra. Með réttum stuðningi og réttri meðferð við sjúkdómum eru allar leiðir færar.
Sendiherrann heimsótti KÍ
Breska sendiráðið gaf út bók dr. Mathew á íslensku í þýðingu Svölu Lindar Birnudóttur. Bókin er ekki ætluð til sölu heldur mun sendiráðið gefa áhugasömum skólum og bókasöfnum prentuð eintök en bókin sjálf er aðgengileg öllum í rafrænni útgáfu hér.
Mathew hefur flakkað á milli skóla og kynnt bókina fyrir grunnskólabörnum, en hún er sérstaklega hugsuð fyrir yngri bekki grunnskóla. Í dag kíkti sendiherrann við í Borgartúnið og kynnti verkefnið fyrir Magnúsi Þór Jónssyni, formanni KÍ, skoðaði skrifstofur og starfsemi Kennarasambandsins og færði sambandinu eintök af bókinni og sérstöku borðspili sem sendiráðið er að þróa samhliða.

Grunnskólakennarar kenna nemendum sínum oft það sem þeir eru góðir í. Þeir geta kennt allt mögulegt t.d. stærðfræði, tungumál, heimilisfræði og handavinnu. Finnst þér skemmtilegt að svara spurningum? Finna upp á nýjum leikjum og kenna vinum þínum þá? Þá ættir þú kannski að verða grunnskólakennari.