Tækniskólinn skrifar undir nýjan kjarasamning
Fréttir|23. júní 2021

Atkvæðagreiðsla meðal félagsmanna FF og FS, sem starfa í Tækniskólanum, hefst á morgun.
Skrifað var undir framlengingu kjarasamnings KÍ, vegna Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum, og Tækniskólans í dag.
Atkvæðagreiðsla hefst á hádegi á morgun, fimmtudaginn 24. júní, og lýkur á hádegi næsta mánudag, 28. júní. Kynningarfundur um nýja samninginn fer fram á Teams á föstudag. Fundartími nánar auglýstur síðar.
Um atkvæðagreiðsluna
- Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is Kjósendur þurfa að skrá sig inn með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.
- Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning KÍ og Tækniskólans og þá birtist atkvæðaseðillinn.
- Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
- Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
- Skiptir þú um skoðun, geturðu kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
- Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.
Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is sími: 595 1111.