Tækniskólinn og Menntaskóli Borgarfjarðar samþykkja kjarasamning

Fréttir|22. júní 2023

Félagsmenn samþykktu kjarasamninginn með yfirgnæfandi meirihluta greiddra atkvæða.

Meirihluti félagsmanna í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum, sem starfa við Tækniskólann og Menntaskóla Borgarfjarðar, sögðu já við breytingum og framlengingu á kjarasamningi aðila.

Um kosningu Tækniskólans

Fulltrúar Tækniskólans skrifuðu undir þann 19. júní 2023 með fyrirvara um samþykki félagsmanna. Atkvæðagreiðsla hófst 20. júní og henni lauk í dag, fimmtudaginn 22. júní 2023, klukkan 15:00. Á kjörskrá voru 206 og þar af greiddu 109 atkvæði, eða 52,91%.

Niðurstaðan hljóðar svo:

  • Á kjörskrá voru 206
  • Atkvæði greiddu 109 eða 52,91%
  • Já sögðu 97 eða 88,99%
  • Nei sögðu 11 eða 10,09%
  • Auðir seðlar voru 1 eða 0,92%

Um kosningu Menntaskóla Borgarfjarðar

Fulltrúar Menntaskóla Borgarfjarðar skrifuðu undir þann 20. júní 2023 með fyrirvara um samþykki félagsmanna. Atkvæðagreiðsla hófst sama dag og skrifað var undir og henni lauk í dag, fimmtudaginn 22. júní 2023, klukkan 15:00. Á kjörskrá voru 14 og 9 greiddu atkvæði, eða 64,29%.

Niðurstaðan hljóðar svo:

  • Á kjörskrá voru 14
  • Atkvæði greiddu 9 eða 64,29%
  • Já sögðu 9 eða 100%
  • Nei sögðu 0 eða 0%
  • Auðir seðlar voru engir

Hér er hægt að lesa meira um samninginn.