Syngjandi barn er hamingjusamt barn!

Fréttir|8. desember 2023

Ásta Magnúsdóttir og Þóra Marteinsdóttir, skipuleggjendur Landsmóts íslenskra barnakóra árið 2023, sögðu Skólavörðunni frá mótinu í aðsendri grein.

Aðsend grein.

„Tónmenntakennarafélag Íslands hélt 21. Landsmót íslenskra barnakóra í Smáraskóla í lok apríl. Á mótið komu um 250 börn á aldrinum 10-16 ára, foreldrar og kórstjórar úr 11 mismunandi kórum víðsvegar af landinu.

Þema mótsins að þessu sinni var Eurovision og voru margar okkar helstu Júróvisjónperlur útsettar fyrir barnakóramótið. Einnig frumfluttu börnin glænýtt verk um Þorgeirsbola eftir Örlyg Benediktsson við ljóð Þórarins Eldjárns.

Herlegheitin hófust með sameiginlegri kvöldvöku á föstudagskvöldinu og á laugardeginum tóku við stífar æfingar. Mótinu lauk svo á sunnudeginum með stórtónleikum í troðfullri Digraneskirkju þar sem forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, var heiðursgestur.

Skemmst er frá því að segja að börnin voru til sóma og gleðin í fyrirrúmi sem og góða skapið. Það var samróma álit þátttakenda að mótið hefði verið vel heppnað. Þátttakendur voru fegin að geta komið saman án þess að því fylgdi keppni og fundu sterkt fyrir hvernig öll unnu að sameiginlegu markmiði.

 

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, með kórbörnunum.


Fjölmargar rannsóknir sýna fram á mikilvægi tónlistar í menntun barna og unglinga. Tónlistarnám styður allt annað nám og ekki síst íslenskunám. Ekki má vanmeta þau jákvæðu áhrif sem samsöngur hefur á skólabrag, hann eflir samkennd, samábyrgð og eykur gleði í skólastarfi sem annars staðar. Í tónlist erum við öll jöfn og öll í sama liðinu.

Þessi jákvæðu áhrif komu greinilega í ljós á mótinu þar sem öll dýrin í skóginum voru ekki bara vinir, heldur bestu vinir. Það var aðdáunarvert að fylgjast með börnunum hjálpast að, hvetja hvert annað og styðja í söng og leik. Á sama tíma voru börnin líka stoltir fulltrúar sinna skóla og tóku hlutverk sitt alvarlega. Öll börn gengu frá eftir sig og lögðu sig fram við að skila kennslustofunum, sem Smáraskóli lánaði okkur fyrir mótið, í sem bestu ásigkomulagi.

Mót sem þetta væri ekki gerlegt ef ekki kæmi fjöldi fólks mótshöldurum til aðstoðar. Foreldrar kórbarna í Skólakór Smáraskóla störfuðu sem einstök liðsheild þessa helgi og eru mikil fyrirmynd í foreldrasamstarfi og kunnum við þeim miklar þakkir fyrir. Einnig þökkum við Smáraskóla fyrir að hýsa mótið, þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem gáfu kórbörnunum mat og að lokum Lista- og menningarráði Kópavogs fyrir að styrkja mótið um prentun á nótnahefti þess.

Mótshaldarar eru yfir sig stoltir af ungmennum landsins eftir helgi eins og Landsmót íslenskra barnakóra og það er einróma niðurstaða þeirra sem komu að mótinu að syngjandi barn er hamingjusamt barn. Það er því mikil tilhlökkun hjá Tónmenntakennarafélagi Íslands að halda næsta mót haustið 2024 og þá vonandi á Hvolsvelli. Hlökkum til að sjá sem flest þar!“

Ásta Magnúsdóttir og Þóra Marteinsdóttir, skipuleggjendur Landsmóts íslenskra barnakóra árið 2023 skrifa.