Sýn KÍ á skólakerfi framtíðar

„Við erum ekki að leggja upp í neina sólóferð. Við höfum ekki öll svörin og viljum heyra ólík sjónarmið, hugmyndir og reynslu. Á næstu dögum munum við því leita eftir samtali við lykilaðila innan og utan skólakerfisins," skrifar Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, í pistli sem sendur var út til félagsfólks.
Strax í kjölfar síðasta þings KÍ ákváðum við að lyfta enn frekar þeirri hlið starfs Kennarasambandsins sem snýr að skólastarfi, þróun þess og framtíð. Við viljum að rödd okkar heyrist skýrar í umræðunni um menntamál og að við tökum sjálf frumkvæði að samtali um hvert við viljum stefna.
Umræða um skólamál hefur verið mikil að undanförnu og það er ánægjulegt. Hún hefur þó oft verið sundurlaus, snúist um einstök vandamál og skammtímalausnir, án þess að heildarmyndin fái nægilegt rými.
Við í Kennarasambandi Íslands búum yfir gríðarlegri þekkingu og reynslu af skólastarfi í leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskólum um allt land. Hjarta okkar slær fyrir menntun þeirra tugþúsunda barna og ungmenna sem sækja skólana okkar á hverjum degi. Sú sameiginlega sýn á að vera leiðarljós okkar.
Á blaðamannafundi miðvikudaginn 7. október kynntum við bæklinginn Blásum byr í seglin, framtíðarsýn KÍ um íslenskt skólastarf og kölluðum eftir víðtæku samfélagslegu samtali. Jafnframt opnuðum við vefinn motumframtidinasaman.ki.is, þar sem hægt er að kynna sér bæklinginn, áherslur hans og upplýsingar sem liggja að baki.
Ég hvet ykkur öll eindregið til að kynna ykkur bæklinginn og ræða efni hans á ykkar vinnustöðum. Hann á ekki aðeins að vera innlegg KÍ í þjóðfélagsumræðuna heldur líka grundvöllur samtals innan hvers skóla. Hvað erum við að gera vel? Hvar liggja sóknarfærin? Hvernig viljum við sjá skólana okkar þróast á næstu árum?
Bæklingurinn getur jafnframt verið gott innlegg í samtal í nærsamfélaginu, meðal foreldra, sveitarstjórnarfólks, nemenda og annarra sem láta sig skólastarf varða. Skólarnir eru mikilvægur hluti hvers samfélags og framtíð þeirra á að vera sameiginlegt viðfangsefni okkar allra.

Að vera tilbúin til samtals er ekki það sama og að hafa tekið afstöðu.
Gott dæmi um þetta er umræða sem skapaðist í kjölfar nýlegrar fréttar á Vísi um mögulega lengingu skólaársins. Fréttin varð til þegar blaðamaður óskaði eftir viðbrögðum mínum við skoðanagrein formanns Heimilis og skóla og spurði hvort KÍ væri tilbúið að ræða slíka hugmynd.
Ég svaraði því að við værum tilbúin að skoða og ræða ólíkar hugmyndir um þróun skólastarfs. Það þýðir hins vegar ekki að KÍ hafi lagt til lengingu skólaársins eða að slík breyting sé á dagskrá sambandsins. Ég skil vel að fyrirsögn fréttarinnar hafi vakið spurningar meðal félagsfólks, en mikilvægt er að hafa þetta samhengi í huga og að við föllum ekki í „click-bait“ gildru sem fjölmiðlar hiklaust beita. Heill vefur, 36 blaðsíðna bæklingur um skólastarf en spurningin og fyrirsögnin um afmarkaðan þátt í dægurþrasi.
Þegar við köllum eftir víðtæku samfélagslegu samtali koma fram hugmyndir sem aðrir leggja fram. Það þýðir þó ekki að allar hugmyndir séu góðar eða að við tökum undir þær. Við metum þær út frá faglegum forsendum, hagsmunum barna og ungmenna, starfsaðstæðum kennara og þeim réttindum sem samið hefur verið um. Þannig uppfræðum við umræðu um skólamál og aukum skilning á skólastarfi.
Við erum ekki að leggja upp í neina sólóferð. Við höfum ekki öll svörin og viljum heyra ólík sjónarmið, hugmyndir og reynslu. Á næstu dögum munum við því leita eftir samtali við lykilaðila innan og utan skólakerfisins.
Þið getið lagt ykkar af mörkum með því að senda hugmyndir, ábendingar eða boð um samtal á motumframtidinasaman@ki.is.
Ég þakka öllum þeim sem hafa komið að þessari vinnu undanfarna mánuði fyrir þeirra mikilvæga framlag. Nú viljum við fá enn fleiri með okkur í þessa vegferð.
Skólakerfið er okkar allra. Við eigum að vera stolt af því sem vel er gert, hafa kjark til að ræða það sem betur má fara og sameinast um hvert við viljum stefna.
Blásum byr í seglin og mótum framtíðina saman!
