Svona sækir þú um í Starfsþróunarsjóð leiðbeinenda í FL
Nákvæmar leiðbeiningar um hvernig sótt er um í Starfsþróunarsjóð leiðbeinenda í FL eru komnar á vefinn og má nálgast hér. Það styttist í að opnað verði fyrir umsóknir í sjóðinn 1. október næstkomandi. Umsóknir þurfa að berast í gegnum Mínar síður á vefsíðu Kennarasambandsins.
Starfsþróunarsjóðurinn er ætlaður þeim sem ekki hafa leyfisbréf til kennslu í leikskóla, og hafa lokið BA-, BS- eða B.ed prófi en vilja sækja sér menntun sem veitir leyfisbréf.
Eftirtalin gögn þurfa að fylgja umsókninni:
- Viðurkennd staðfesting á skólavist sem veitir leyfisbréf til kennslu á leikskólastigi.
- Staðfesting á að hafa lokið að lágmarki 180 ECTS einingum frá viðurkenndum háskóla og útskrifast með BA, BS eða B.Ed. próf.
- Staðfesting frá leikskólastjóra á starfshlutfalli og lengd félagsaðildar í FL.
Tekið er við umsóknum til 1. nóvember 2015.
Upphæð og fjöldi styrkja ræðst af því fjármagni sem sjóðurinn hefur úr að spila. Ekki er hægt að sjá fyrir upphæð styrkja fyrr en fjöldi gildra umsókna liggur fyrir. Afgreiðsla umsókna fer fram í lok nóvember.
Reglur um Starfsþróunarsjóð leiðbeinenda í FL.