Svigrúm til kennslu í tónlistarskólum aukið

Tónlistarskólum er nú heimilt að sinna einstaklingskennslu að því skilyrði uppfylltu að tveggja metra reglan gildi milli starfsfólks og nemenda. Þetta kemur fram í nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra vegna COVID-19.
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að draga úr takmörkun á skólastarfi í tónlistarskólum og auka þannig svigrúm til tónlistarkennslu. Tónlistarskólum verður heimilt að sinna einstaklingskennslu en halda skal 2 metra reglu milli starfsfólks og nemenda. Öll tónlistarkennsla barna á leik- og grunnskólaaldri er heimil með sömu takmörkunum og gildir um íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf, þ.e. að hámarki 50 börn á leikskólaaldri og 1.-4. bekk og að hámarki 25 í 5.-10. bekk..
Tveggja metra reglan gildir um nemendur í 8.–10. bekk en ef víkja þarf frá henni skulu notaðar andlitsgrímur.
Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma í tónlistarskóla nema brýna nauðsyn beri til. Aðrir en starfsmenn sem koma í tónlistarskóla, svo sem vegna vöruflutninga, skulu bera andlitsgrímur.
Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar og búnað eftir hvern dag og milli einstaklinga og hópa í sama rými.
Reglugerðin hefur verið send Stjórnartíðindum. Hún tekur gildi við birtingu og gildir til og með 1. desember.