Sveitarfélögin hvött til að koma til móts við sáttaumleitanir FT
Nú nýverið afhentu kennarar og stjórnendur í tónlistarskólum á Stór-Reykjavíkursvæðinu borgarstjóra Reykjavíkur ályktun og óskuðu eftir aðgerðum af hálfu borgarstjórnar. Óskað er eftir því að borgin liðki fyrir og hlutist til um að gengið verði frá kjarasamningi við Kennarasamband Íslands (KÍ) vegna Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) og meginreglur varðandi félagafrelsi og kjarasamninga verði í hávegum hafðar.
KÍ fer með samningsrétt vegna félagsmanna FT, en í umboði KÍ er það í hlutverki samninganefndar FT að gera kjarasamninga fyrir félagsmenn sína, að standa vörð um og tryggja hagsmuni þeirra í samræmi við stefnumörkun sambandsins.
Kjarasamningur FT við sveitarfélögin og Reykjavíkurborg hefur verið laus í tæpa 15 mánuði eða frá því í byrjun nóvember 2015 og er það óviðunandi ástand. Það veldur forystu KÍ miklum vonbrigðum að sveitarfélögin og samninganefnd þeirra (SNS) hafi ekki séð sér fært að koma meira til móts við samninganefnd FT en raun ber vitni hvað framlagða tillögu að skammtímasamningi varðar. Því ófremdarástandi sem kennarar og stjórnendur í tónlistarskólum hafa þurft að búa við í rúmt ár verður að linna.
Undirritaður skorar á sveitarfélögin og Reykjavíkurborg að leggja meira af mörkum við að koma til móts við tillögu samninganefndar FT um stuttan samningstíma og eingreiðslu til þess að bæta þann skaða sem tafir við samningsgerðina hafa valdið félagsmönnum með lægri launasetningu í rúmt ár. Það er á ábyrgð aðila kjarasamninga að ljúka samningum og þar þarf tvo til. Sveitarfélögin og Reykjavíkurborg eru hvött til að ganga til móts við sáttaumleitanir FT og binda endi á samningsleysi félagsmanna FT sem er fyrir löngu orðið óásættanlegt fyrir alla hlutaðeigandi.
Þórður Árni Hjaltested, formaður Kennarasambands Íslands