Sveitarfélögin höfnuðu tillögu sáttasemjara

Kennarasambandið samþykkti innanhússtillögu ríkissáttasemjara til lausnar kjaradeilu KÍ og hins opinbera í gær. Sveitarfélögin höfnuðu tillögunni og svaraði ekki.
Samband íslenskra sveitarfélaga hafnaði innanhússtillögu ríkissáttasemjara um hádegi í dag.
Sáttasemjari lagði tillöguna fram til lausnar í kjaradeilu KÍ við sveitarfélög og ríki. Viðræðunefnd KÍ samþykkti tillöguna fyrir hönd KÍ síðdegis í gær. Samband sveitarfélaga óskaði eftir fresti til að kynna afstöðu sína í gærkvöld og var sá frestur veittur til hádegis í dag.
Ekkert svar mun hafa borist frá samninganefnd ríkisins.
Verkföll hófust í fimm framhaldsskólum og einum tónlistarskóla á miðnætti. Verkfall stendur yfir í Leikskóla Snæfellsbæjar. Boðuð hafa verið verkföll í grunn- og leikskólum í nokkrum sveitarfélögum á allra næstu vikum.
Viðbrögð formanns
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, fór ágætlega yfir málið í fréttum RÚV.