Sveinlaug nýr varaformaður FL

Sveinlaug starfar við útikennslu í Krikaskóla í Mosfellsbæ. Hún hefur mikla reynslu af störfum fyrir FL og KÍ. Hún sat í þrjú ár í útgáfustjórn KÍ, var fulltrúi FL í leikskóladeild NLS í fjögur ár, var fulltrúi FL í sameiginlegri skólamálanefnd FL og FLS í fjögur ár og átti sæti í skólamálanefnd FL síðustu fjögur árin.
Sveinlaug Sigurðardóttir er nýr varaformaður Félags leikskólakennara. Þetta var ákveðið á stjórnarfundi FL sem fram fór í morgun. Fráfarandi varaformaður FL er Fjóla Þorvaldsdóttir en hún gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn.
Sveinlaug starfar við útikennslu í Krikaskóla í Mosfellsbæ. Hún hefur mikla reynslu af störfum fyrir FL og KÍ. Hún sat í þrjú ár í útgáfustjórn KÍ, var fulltrúi FL í leikskóladeild NLS í fjögur ár, var fulltrúi FL í sameiginlegri skólamálanefnd FL og FLS í fjögur ár og átti sæti í skólamálanefnd FL síðustu fjögur árin. Þá hefur Sveinlaug einnig reynslu af starfi trúnaðarmanns en hún gegndi því starfi í leikskólanum Grænuborg um þriggja ára skeið.
Aðrir í stjórn FL eru Haraldur Freyr Gíslason formaður, Hanna Berglind Jónsdóttir, Hanna Rós Jónasdóttir og Sverrir Jensson Dalsgaard.
Kjörtímabil stjórnar er frá 2018 til 2022.
