Svæðistónleikar Nótunnar haldnir á fjórum stöðum um helgina
Svæðistónleikar Nótunnar fara fram um allt land á morgun og um helgina. Nótan er nú haldin í sjöunda sinn og innan tónlistarskólanna hafa verið valin atriði sem verða flutt á svæðistónleikum á fjórum stöðum.
Tónleikahaldið næstu þrjá daga verður sem hér segir:
Svæðistónleikar Nótunnar fyrir Norður- og Austurland
Menningarhúsið Hof, Strandgötu 12, Akureyri – föstudagur 11. mars 2016
- Kl. 14.00 Tónleikar I
Kaffihlé - Kl. 16.00 Tónleikar II
Lokaathöfn. Afhending viðurkenningarskjala og verðlaunagripa.
Svæðistónleikar Nótunnar fyrir Reykjavík
Salurinn – Tónlistarhús Kópavogs, Hamraborg 6 – laugardagur 12. mars 2016
- Kl. 11.00 Tónleikar I – grunnnám, miðnám, opinn flokkur
- Kl. 13.00 Tónleikar II – opinn flokkur, framhaldsnám
- Kl. 15.00 Lokaathöfn. Afhending viðurkenningarskjala og verðlaunagripa.
Svæðistónleikar Nótunnar fyrir Vesturland og Vestfirði
Stykkishólmskirkja – laugardagur 12. mars 2016
- Kl. 14.00 Tónleikar – allir þátttökuflokkar.
- Kaffihlé og Lokaathöfn.
Afhending viðurkenningarskjala og verðlaunagripa.
Svæðistónleikar Nótunnar fyrir Kragann, Suðurland og Suðurnes
Salurinn – Tónlistarhús Kópavogs, Hamraborg 6 – sunnudagur 13. mars 2016
- Kl. 12.30 Tónleikar I – neðri námsstig
- Kl. 14.30 Tónleikar II – efri námsstig
- Kl. 16.00 Lokaathöfn. Afhending viðurkenningarskjala og verðlaunagripa.
Fyrirkomulagið er þannig að tiltekinn fjöldi atriða á hverjum svæðistónleikum öðlast rétt til þátttöku á lokahátíð Nótunnar sem fram fer í Eldborg Hörpu sunnudaginn 10. apríl 2016. Nótan er samstarfsverkefni Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, Samtaka tónlistarskólastjóra, Tónastöðvarinnar, Töfrahurðar og Tónlistarsafns Íslands.
Meira um fyrirkomulag, verðlaun og viðurkenningar á Nótunni.
Nótan á Facebook. Munið að nota myllumerkið #notan2016.