Svæðisþing FT og STS mótmælir harðlega niðurskurði í Reykjavík

Fréttir|23. september 2025
Tónlistarnemar úr Reykjavík, af Kraganum, Suðurlandi og Suðurnesjum fluttu tónlist í Salnum í Kópavogi.

Niðurskurður Reykjavíkurborgar á fjárframlögum til tónlistarnáms byggir ekki á málefnalegum grunni og hefur þegar haft alvarlegar afleiðingar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun sem var samþykkt á svæðisþingi tónlistarskóla fyrir skemmstu.

Öll börn og ungmenni eiga að hafa jafnan aðgang að tónlistarnámi, óháð efnahag eða búsetu. Framlög Reykjavíkurborgar hafa ekki fylgt íbúafjölgun, sem leiðir af sér langa biðlista. Sífellt færri börn hlutfallslega fá tækifæri til að stunda tónlistarnám á sama tíma og tónmenntakennsla er á undanhaldi í grunnskólum," segir í ályktun svæðisþing tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu og Vesturlandi þann 21. ágúst síðastliðinn. 

í ályktuninni er jafnframt skorað á Reykjavíkurborg að eiga opið og málefnalegt samtal við tónlistarskólana með það að leiðarljósi að tryggja inngildingu og aðgengi allra barna og ungmenna að tónlistarmenntun. 

 

Ályktun svæðisþingsins hljóðar svo: 

Svæðisþing tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu og Vesturlandi, haldið 21. ágúst 2025 á Grand Hótel Reykjavík, samþykkti eftirfarandi ályktun:

Svæðisþingið mótmælir harðlega rúmlega 7 prósenta niðurskurði Reykjavíkurborgar á fjárframlögum til tónlistarnáms. Niðurskurðurinn byggir ekki á málefnalegum grunni og hefur þegar haft alvarlegar afleiðingar. Hann skerðir aðgengi barna og ungmenna í Reykjavík að tónlistarnámi og er í engu samræmi við ímynd og anda Tónlistarborgarinnar Reykjavík. Þá fer niðurskurðurinn þvert gegn nýlegri stefnu þjóðarinnar í málefnum tónlistar.

Svæðisþingið skorar á Reykjavíkurborg að draga ákvörðunina til baka, auka frekar fjárframlög til tónlistarnáms í borginni og útrýma biðlistum í tónlistarnám. Tryggja ber fullnægjandi fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla borgarinnar í samræmi við lög nr. 75/1985 um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla.

Svæðisþingið leggur áherslu á jafnræði og samfélagslega ábyrgð sveitarfélaga. Öll börn og ungmenni eiga að hafa jafnan aðgang að tónlistarnámi, óháð efnahag eða búsetu. Framlög Reykjavíkurborgar hafa ekki fylgt íbúafjölgun, sem leiðir af sér langa biðlista. Sífellt færri börn hlutfallslega fá tækifæri til að stunda tónlistarnám á sama tíma og tónmenntakennsla er á undanhaldi í grunnskólum.

Svæðisþingið skorar á Reykjavíkurborg að eiga opið og málefnalegt samtal við tónlistarskólana. Þar ætti leiðarljósið að vera, í samhljómi við skilgreint hlutverk stjórnvalda í tónlistarstefnu, að tryggja inngildingu og aðgengi allra barna og ungmenna að tónlistarmenntun. Markmiðið hlýtur að eiga að vera að efla tónlistarmenntun í samræmi við menntastefnu og styrkja greinina en ekki veikja með stöðugum niðurskurði á fjárframlögum, aldurstakmörkunum í tónlistarnám og öðrum hindrunum.