Sungið á samningafundi
Fréttir|9. október 2014
Samninganefnd Félags tónlistarskólakennara fundaði með Samninganefnd sveitarfélaga frá kl. 13-16 í húsakynnum Ríkissáttasemjara í gærdag. Það fór þá aldrei svo að SNS kæmist hjá því að hlýða á fagra tóna tónlistarkennara og stjórnenda tónlistarskóla þar sem fundinn bar upp á fæðingardag eins fulltrúa SNS og að sjálfsögðu söng samninganefnd FT afmælissönginn að því tilefni. Eins og kunnugt er neitaði SNS að hlíða á söng tónlistarskólakennara þegar þeir mættu til samstöðufundar í húsnæði Ríkissáttasemjara á þriðjudaginn.
Á fundinum í gær voru ákvæði í kjarasamningi aðila tekin til efnislegrar umræðu. Næsti fundur er boðaður kl. 17:00 í dag þar sem þeirri vinnu verður framhaldið.