Sundamenn mótmæla áformum ráðherra
Kennarafélag Menntaskólans við Sund, Sundamenn, mótmæla fyrirhugaðri styttingu náms til stúdentsprófs. Sundamenn mótmæla einnig skertum möguleikum eldri nemenda til að sækja sér menntun í framhaldsskólum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun sem Sundamenn sendu frá sér fyrr í dag.
Ályktunin hljóðar svo:
„Sundamenn mótmæla fyrirhugaðri styttingu náms til stúdentsprófs. Slík aðgerð gengur þvert á allar fyrirætlanir um aukna og dreifstýrðari sérhæfingu skóla. Það er hæpið að nokkur sparnaður hljótist af styttingu náms, þegar til lengri tíma er litið, enda vegur hann lítið í samanburði við tjónið sem af hlýst. Það má vera ljóst að stytting felur í sér skerðingu á námi og námsframboði og nemendur verða verr undir það búnir en áður að stunda frekara nám, á borð við háskólanám. Þá er styttingin lítt til þess fallin að stemma stigu við stórfelldu brottfalli nemenda úr framhaldsskólum sem og ólíklegri til að koma til móts við allan þann fjölbreytileika sem nemendahóparnir hafa að geyma. Sumum nemendum kann að henta að flýta ferð sinni í gegnum framhaldsskólann og er þá sá kostur fyrir hendi í áfangaskólum landsins. Óþarft er að gera stórfellda breytingu á skólakerfinu.
Sundamenn mótmæla einnig skertum möguleikum eldri nemenda til að sækja sér menntun í framhaldsskólum. Sú aðgerð stuðlar beinlínis að ójafnrétti til náms og kemur illa niður á nemendum sem geta ekki sinnt námi sínu með jafnöldrum t.d. vegna langvinnra veikinda eða bágrar fjárhagsstöðu.
Sundamenn skora á menntamálaráðherra að hverfa frá þessum harkalegu aðgerðum og stuðla heldur að því verðuga markmiði að auka menntunarstig þjóðar. Það mun áreiðanlega skila sér í framtíðinni.“