Sumt er ekki hægt að læra í skólum

„Verkefni sem þessi auka þroska nemenda sem kynnast því að standa á eigin fótum í öðru landi og lifa og hrærast í menningu annarra þjóða." Svava Jónsdóttir ræddi við Ingibjörgu Ramos, nemanda við myndlistarbraut Framhaldsskólans í Breiðholti (FB), og Ágústu Unni Gunnarsdóttur, kynningarstjóra og alþjóðafulltrúa FB, um erlent samstarf í nýjasta tölublaði Skólavörðunnar.
Ingibjörg Ramos, nemandi við myndlistarbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti, fór í fyrra í tvær ferðir á vegum skólans í tengslum við Erasmus-styrki; fyrst til Noregs og svo til Þýskalands. „Við getum hjálpað hvert öðru miklu meira af því að við erum komin með meiri innsýn og meiri víðsýni eftir að hafa tekið þátt í þessu og unnið með þessu fólki.“
„Ágústa Unnur Gunnarsdóttir, kynningarstjóri og alþjóðafulltrúi FB, bauð mér í Covid-faraldrinum að taka þátt í frumkvöðlaverkefni á vegum Erasmus+ hér heima og í fjóra daga sat ég ásamt öðrum nemendum í FB í stofu í skólanum og talaði við fólk út um allan heim,“ segir Ingibjörg Ramos sem útskrifast í vor frá myndlistardeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti og sótti nýlega um að komast í Listaháskóla Íslands. „Verkefnið endaði á ræðukeppni tveggja fulltrúa frá hverju landi og dagana áður hlustuðum við á fyrirlestra og kynntum litlar hugmyndir sem við höfðum unnið að í hópum á Zoom.“

Ingibjörg fékk svo Erasmus-styrk vorið 2022 og dvaldi þá í Noregi í fimm daga ásamt þremur öðrum nemendum FB. „Við vorum að reyna að hugsa á nýjan hátt; koma frá okkur hugmyndum á „nýsköpulegan“ hátt og hugsuðum mikið um sjálfbærni. Við unnum að verkefni og enduðum á því að hanna vélmenni. Þetta var hópverkefni og við enduðum á því að kynna þetta fyrir dómnefnd og þurftum þá að svara alls konar spurningum og vera mjög tæknileg. Það var mikil áskorun fyrir mig af því að ég er vön að hugsa mjög myndlistarlega séð og þá þarf ekkert að „meika sens“ og þá þarf ekkert að virka en þarna þurfti eitthvað að virka og vera hægt að búa til í raunveruleikanum, sem var svolítið áhugavert fyrir mig persónulega. Það var mjög skemmtilegt verkefni og mjög áhugavert af því að ég hef alltaf verið mjög föst í því að fara myndlistarveginn og það var gaman að þurfa að hugsa einhvern veginn öðruvísi en ég er vön að gera.
Í rauninni var sjálfbærni á vinnumarkaðnum eitt aðalatriði verkefnisins. Við heimsóttum mikið af fyrirtækjum og stofnunum til að sjá hvernig þau gerðu hlutina og það var gaman að sjá muninn á því sem þau gerðu og hér heima. Við þurftum sem sagt að hanna vélmenni sem gæti virkað á ákveðnum vinnumarkaði. Hin löndin voru Noregur, Ítalía, Portúgal og Finnland. Hópurinn minn hannaði vélmenni sem sáldraði fræum yfir akra, vökvaði og klippti síðan plönturnar. Við þurftum að vera ítarleg með hvernig allt yrði. Ég kynntist líka mörgum góðum krökkum, meðal annars kærastanum mínum.“
Plakat á skilti
Ingibjörg fékk svo annan Erasmus-styrk í fyrrahaust og fór þá til Kassel í Þýskalandi til að taka þátt í listahátíðinni Documenta fifteen og dvaldi ytra í 10 daga.
„Það var einhvern veginn þægilegri grundvöllur fyrir mig þó það hafi verið mikil áskorun. Þetta er ein helsta listahátíð í öllum heiminum og það var gaman að fá nasasjón af því hvernig það er að taka þátt í svona stóru, alþjóðlegu og mikilvægu verkefni.
Við vorum með þrjú verkefni. Eitt þeirra vorum við búin að vinna hérna heima í næstum því hálft ár áður en við fórum út en löndin sem fengu Erasmus-styrk fóru í keppni um að hanna plaköt sem yrðu sett upp á auglýsingaskiltum í Kassel; löndin sem voru með okkur voru Þýskaland, Spánn og Ungverjaland. Ég og vinkona mín hönnuðum plakat í sameiningu sem var síðan valið til að setja á risastórt skilti og Documenta-lógóið sett á það. Þetta var listaverk á sýningunni og það er súrrealískt að hugsa út í að ég hafi fengið tækifæri til að taka þátt í þessu.
Annað verkefni sem íslenski hópurinn fólst í því að við fengum glerskála í miðbænum og hinir íslensku þátttakendurnir voru meira en ég að teikna pöddur á glerið. Hugmyndin var að fylla alla glerveggina smátt og smátt með pöddum. Þetta fjallaði um hvernig heimurinn er orðinn, hvað við erum orðin mörg og hvernig margt lítið getur myndað eina stóra heild.
Ég og vinur minn, Torfi, unnum síðan verkefni sem við lýstum sem lifandi skúlptúr. Við fórum út um alla Kassel og söfnuðum rusli og dóti sem við fundum á götunni og byggðum skúlptúr úr því í glerskálanum og þegar okkur fannst skúlptúrinn vera tilbúinn þá tókum við hann í sundur og byrjuðum á nýjum. Þetta ferli gekk fimm sinnum.“

Ingibjörg segir að stór hluti af því að taka þátt í listahátíðinni hafi tengst því að skoða allar sýningarnar sem voru í boði.
„Það eru alltaf mismunandi sýningarstjórar á Documenta-listasýningunum, sem eru haldnar á fimm ára fresti, og í fyrra sá listamannahópur frá Indónesíu um hátíðina. Maður er svo vanur vestrænni myndlist og það var svo gaman að sjá hvað er að gerast úti í heimi. Það var gaman að sjá menningarmuninn og mismunandi hugsunarhátt.“
Norge versus Deutschland
Ingibjörg talar um að verkefnin í Noregi og Þýskalandi hafi verið eins ólík og hægt er að hugsa sér. „Þetta voru ólíkar týpur sem ég vann með á þessum stöðum, mismunandi andrúmsloft og ólík markmið. En það sem var líkt tengdist því hvernig samskipti hafa áhrif á það að vera að vinna að einhverju nýju og hvað samvinna getur verið erfið en mikilvæg og leiðir mann til að hugsa út fyrir sitt box.“
Ingibjörg segir að þátttaka í Documenta fifteen sé lífsreynsla sem hún haldi að muni hjálpa sér í gegnum allan sinn feril þar sem hún hafi lært svo mikið og að sumt sé ekki hægt að læra í skólum.
„Það fer ekki alltaf eftir plani þegar maður tekur þátt í svona. Það kom ýmislegt upp á sem við þurftum að tækla í nýjum aðstæðum, í nýju umhverfi og með nýju fólki. Ég er, sérstaklega eftir að hafa tekið þátt í Documenta fifteen, miklu gagnrýnni í hugsun á það sem ég geri sjálf. Við getum hjálpað hvert öðru miklu meira af því að við erum komin með meiri innsýn og meiri víðsýni eftir að hafa tekið þátt í þessu og unnið með þessu fólki.“

Við getum hjálpað hvert öðru miklu meira af því að við erum komin með meiri innsýn og meiri víðsýni eftir að hafa tekið þátt í þessu og unnið með þessu fólki.
Umburðarlyndi og víðsýni
Þúsundir nemenda Fjölbrautaskólans í Breiðholti hafa síðustu áratugi fengið styrki til þess að dvelja erlendis í lengri eða skemmri tíma. Nemendur hafa þannig öðlast meiri þekkingu í tungumálum og menningu annarra þjóða sem eykur víðsýni þeirra.
„Við viljum veita menntun í hæsta gæðaflokki og alþjóðleg verkefni sem þessi gera skólann framsækinn því við fylgjumst með því nýjasta sem er að gerast í heiminum, en bæði kennarar og nemendur eru duglegir að fara út og afla sér þekkingar og þjálfunar i því nýjasta á þeirra sviði,“ segir Ágústa Unnur Gunnarsdóttir, kynningarstjóri og alþjóðafulltrúi skólans.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti á sér áratuga langa sögu varðandi erlent samstarf, sem hefur aukist jafnt og þétt í gegnum árin. Skólinn tók árið 2011 þá ákvörðun að vera með alþjóðafulltrúa og var Ágústa Unnur Gunnarsdóttir þá ráðin sem alþjóðafulltrúi og kynningarstjóri skólans. „Þá fór þetta í fastar skorður og þá jukum við umsvifin og sóttum um Evrópustyrki eins og Erasmus+-styrki og Nord plus styrki auk safnana nemendanna sjálfra.“ Í gegnum þessa styrki hafa nemendur meðal annars farið í náms- og þjálfunarferðir til Danmerkur, Hollands, Spánar, Portúgal, Eistlands og Tenerife.
Skólinn hefur hlotið Erasmus+ aðild vegna náms- og þjálfunarverkefna í Erasmus+ áætlun ESB til ársins 2027. „Vottunin er ákveðinn gæðastimpill sem þeir skólar sem standa sig fá, og hún tryggir okkur styrki á hverju ári. Þessa vottun fengum við fyrir nám og þjálfun í list- og verkmenntun og við höfum til dæmis nýtt styrkinn til þess að senda nemendur út í starfsþjálfun í einn til þrjá mánuði. Það er hægt að senda nemendur í allt að 12 mánuði í starfsþjálfun í sinni iðngrein.

Ferðir sem þessar auka þroska og umburðarlyndi gagnvart öðrum og efla þekkingu okkar á menningu annarra þjóða.
Eykur víðsýni nemenda
Ágústa segir að það gefi nemendum gríðarlega mikið að fá tækifæri til að taka hluta af námi sínu í útlöndum.
„Það sem okkur finnst skipta miklu máli er að verkefni sem þessi auka þroska nemenda og í öllum könnunum kemur fram að nemendur eru gríðarlega ánægðir, sem og starfsmenn sem fara út. Ferðir sem þessar auka þroska og umburðarlyndi gagnvart öðrum og efla þekkingu okkar á menningu annarra þjóða. Þá kynnast nemendur því að standa á eigin fótum í öðru landi og lifa og hrærast í menningu annarra þjóða. Fyrir utan auðvitað reynsluna og þjálfunina sem þau fá í sínu fagi. Þá eru svo margir aðrir kostir sem tengjast þessu en bara þjálfunin í faginu.
Við erum mjög ánægð með hvað nemendur hafa verið þakklátir fyrir þetta tækifæri og skiptir fjárhagur nemenda í raun ekki máli því styrkurinn er það góður að hann dekkar flug, gistingu og uppihald. Við erum þannig að veita jöfn tækifæri með þessum styrkjum og við höfum alltaf haft það til hliðsjónar að allir hafi jafna möguleika á að sækja um. Það skiptir auðvitað máli að nemandi sé samviskusamur og hafi mikinn áhuga og þegar nemandi fer á vinnustað í útlöndum þá skiptir það öllu máli að hann mæti og stundi sína starfsþjálfun af kostgæfni. Við höfum verið mjög heppin með nemendur og þau hafa staðið sig virkilega vel.
Þau skipta þúsundum, nemendurnir sem hafa farið út á vegum skólans frá upphafi og þess má geta að við kolefnisjöfnum allar ferðir. Kolviður gróðursetur tré fyrir okkur fyrir hverja flugferð sem farin er.“
Fjölbreytni
Ágústa segir að þessar ferðir veiti skólanum ákveðna sérstöðu. „Við viljum veita menntun í hæsta gæðaflokki og við viljum fylgjast með því sem er að gerast úti í heimi. Ég veit að þetta gerir skólann framsækinn og við fylgjumst með því nýjasta sem er að gerast í heiminum. Gildi FB eru virðing, fjölbreytni og sköpunarkraftur.
Margir nemendur skólans eru af erlendum uppruna og í skólanum er líka starfsbraut fyrir fatlaða nemendur og segja má að skólinn sé þverskurður af þjóðfélaginu. Mér finnst skólinn standa fyrir þetta; jöfn tækifæri fyrir alla, umburðarlyndi, sköpunarkraft og víðsýni sem þarf til að lifa í fjölbreytilegu samfélagi,“ segir Ágústa Unnur Gunnarsdóttir.
Greinin birtist í 1. tbl. Skólavörðunnar 2023.