Sumarúthlutun hefst 8. apríl

Fréttir|7. apríl 2015

Sumarúthlutun í orlofshús KÍ hefst klukkan 18 á morgun, miðvikudaginn 8. apríl. Þá geta félagsmenn sem eiga 300 punkta eða fleiri sótt um orlofshús fyrir sumarið. 

Þeir sem eiga 100 punkta eða fleiri geta sótt um frá og með klukkan 18 fimmtudaginn 9. apríl og þeir sem eiga 1 punkt eða fleiri geta sótt um frá klukkan 18 föstudaginn 10. apríl. 

Opnað verður fyrir úthlutun þeirra sem eiga enga punkta og að mínus 23 punktum klukkan 18 á laugardag. 

Punktakerfi KÍ byggist á því að félagsmenn fá 24 punkta fyrir hvert unnið ár, tvo punkta fyrir hvern mánuð. Við hverja bókun eru mismargir punktar dregnir frá heildarpunktaeign félagsmanns. Á hverju tímabili gildir reglan „fyrstur kemur, fyrstur fær“. 

Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér orlofskosti KÍ á Orlofsvef KÍ og þar er jafnframt hægt að bóka eignir. Þá er hægt að skoða Ferðablaðið hér.