Sumartímabil OKÍ í fullum undirbúningi

Fréttir|8. janúar 2025

Félagar fá sendar upplýsingar um úthlutun og opnun sumar bókana eigna Orlofssjóðs KÍ í lok mánaðar.

Starfsfólk Orlofssjóðs KÍ er á fullu að undirbúa sumartímabilið þessa fyrstu daga nýs árs.

„Það gleður okkur að segja frá því að nú er hægt að tengjast gjaldfrjálsu þráðlausu neti í öllum eignum sjóðsins," segir Linda Björk Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Orlofssjóðs. fyrirkomulagið, þar sem kaupa þurfti net-inneignir, heyrir nú sögunni til. Einnig á að vera snjallsjónvarp alls staðar svo hægt sé að tengjast eigin efnisveitum. Starfsfólk Orlofssjóðs nýtti tækifærið og fjarlægði DVD spilarana sem allir voru komnir til ára sinna og tilheyra öðrum tíma. „Við þurftum bara að hrista af okkur nostalgíuna til að taka skrefið," segir framkvæmdastjórinn.

Bifröst

Félagsfólk getur farið að undirbúa sumarfríið innan skamms.

Síðasta verk stjórnar Orlofssjóðs á árinu 2024 var að samþykkja breytingar á afbókunarreglum sjóðsins, sem felur í sér að í stað þess að félagar fái eingöngu 25% endurgreiðslu við afbókun með 3-8 daga fyrirvara, fær félagsmaður nú 50% endurgreiðslu. Þessi breyting þykir ríma betur við þjónustustefnu sjóðsins.

„Við erum stöðugt að leita leiða til að þjónusta félaga okkar betur og þiggjum ávallt ábendingar inn á orlof@ki.is," segir Linda Björk að lokum og óskar hún félagsfólki gleðilegs nýs árs.