Sumarnámskeið í eðlisfræði

Fréttir|14. maí 2019

Námskeiðið gefur kennurum sem kenna eðlisfræði í framhaldsskólum tækifæri á að styrkja sig faglega og eiga í samskiptum við kollega sína í öðrum skólum.

Félag raungreinakennara gengst fyrir endurmenntunarnámskeiðinu Eðlisfræðikeppnina í eðlisfræðikennslu: stuðningur við nemendur og gagnsemi keppninnar í kennslu dagana 14. og 15. ágúst 2019. Nánari lýsing er hér fyrir neðan. 

Þátttaka er kennurum að kostnaðarlausu að vanda og viljum við hvetja þá sem áhuga hafa að skrá sig á námskeiðið fljótlega. Þátttakendur utan Höfuðborgarsvæðisins geta fengið ferðakostnað endurgreiddan.

Skráning og nánari upplýsingar:
https://www.endurmenntun.is/namskeid/stakt-namskeid?courseID=426V19&n=edlisfraedikeppnin-i-edlisfraedikennslu-br-studningur-vid-nemendur-og-gangsemi-keppninnar-i-kennslu&fl=sumarnamskeid
 
Með von um góðar undirtektir, 
Stjórn Félags raungreinakennara
------
Heiti námskeiðs: Eðlisfræðikeppnina í eðlisfræðikennslu, stuðningur við nemendur og gagnsemi keppninnar í kennslu

Lýsing: Námskeiðið gefur kennurum sem kenna eðlisfræði í framhaldsskólum tækifæri á að styrkja sig faglega og eiga í samskiptum við kollega sína í öðrum skólum. Er það gert með tvennum hætti, annars vegar með bóklegum verkefnum og hins vegar með verklegum æfingum.

Notast er við verkefni úr eðlisfræðikeppni framhaldsskólanna, bæði fræðilega og verklega þætti. Þannig kynnast kennarar þessum verkefnum með því markmiði að geta nýtt verkefnin með sínum nemendum til áhugaaukningar á eðlisfræði og raunvísindum, bæði bóklega og verklega. Mörg verkefnin henta sem verkefni í skólastarfi sem reyna á innsæi, verkefnalausnir, útsjónarsemi og að sjá námsefnið í víðu samhengi. Verklegar æfingar eru að auki ágæt hugvekja fyrir nýbreytni í skólastarfi sem virðist því miður oft sitja á hakanum.

Fyrir daginn verður farið í efnistök gamalla keppna ásamt hentugu undirbúningsefni. Kennarar vinna saman að efnislegri úrlausn verkefnanna og skoða þau svo út frá kennslufræðilegu sjónarhorni.
Síðari daginn verður farið yfir skipulag verklega þáttarins í landskeppninni og hvaða þættir eru metnir. Gerðar verðar verklegar tilraunir í pörum þar sem kennarar fá að spreyta sig á viðfangsefnunum sjálfir.

Dagskrá
Dagur 1:
10:00-12:00: Kynning, efnistök og undirbúningsefni
12:00-13:00: Hádegishlé
13:00-15:00: Efnisleg úrlausn verkefna og kennslufræðileg nálgun
Dagur 2:
10:00-12:00: Verklegar tilraunir
12:00-13:00: Hádegishlé
13:00-15:00: Verklegar tilraunir

Kennarar: Martin Swift, eðlisfræðingur og Ari Ólafsson, eðlisfræðingur.

Dagsetning: 14. og 15. ágúst 2019 kl. 10:00-15:00 (1 klst. í matarhlé)