Sumarnámskeið 2024

Fréttir|12. júní 2024

Sumarnámskeið Samlífs 2024 fór fram í MH og HR. Umfjöllunarefnið var svefn og svefnrannsóknir.

Fyrri daginn fjölluðu Dr. Erla Björnsdóttir og Dr. Erna Sif Arnardóttir um svefn ungmenna, svefnleysi, svefnmynstur og svefnrannsóknir. Seinni daginn fræddi Atli Jósefsson okkur um nauðsyn svefns og Rúna Sif Stefánsdóttir um niðurstöður úr rannsókn á svefn og svefnmunstri unglinga frá grunnskóla í framhaldsskóla. Eftir hádegi tók Sigríður Sigurðardóttir á móti okkur í svefnsetri HR þar sem sjálfboðaliði reyndi að sofna og svefnmæling var framkvæmd.