Sumarlokun skrifstofu KÍ
Fréttir|9. júlí 2020

Skrifstofa KÍ verður lokuð í þrjár vikur, frá 13. júlí til 4. ágúst. Símatími hjá Orlofssjóði alla virka morgna.
Sumarlokun Kennarahússins hefst mánudaginn 13. júlí og stendur venju samkvæmt í þrjár vikur.
Skrifstofa KÍ opnar á nýjan leik að morgni þriðjudagsins 4. ágúst. Þeir sem þurfa að hafa samband við Orlofssjóð KÍ á meðan á sumarlokun stendur geta hringt í síma 595 1170 á milli klukkan 9 og 12 alla virka daga.
Einnig er hægt að senda tölvupóst á orlof@ki.is.
Starfsfólk Kennarasambandsins sendir félagsmönnum og fjölskyldum þeirra óskir um gleðilegt sumar.