Sumarlokun á skrifstofu KÍ
Fréttir|10. júlí 2023

Skrifstofa Kennarasambandsins verður lokuð frá 17. júlí til 7. ágúst.
Sumarlokun Kennarasambands Íslands hefst mánudaginn 17. júlí. Lokað verður, venju samkvæmt, í þrjár vikur. Skrifstofan verður opnuð á nýjan leik þriðjudaginn 8. ágúst.
Hægt verður að hafa samband við Orlofssjóð á meðan á sumarlokun stendur. Símatími verður alla virka daga frá klukkan 9:00 til 12:00, í síma 595 1192 og tölvupóstum sem berast á orlof@ki.is verður svarað innan eins dags. Best er fyrir gesti orlofshúsa að byrja alltaf á því að hafa samband við skráða umsjónarmenn.