Sumarkveðja KÍ

Fréttir|23. apríl 2020

Í reglulegu fréttabréfi KÍ er fjallað um kórónuveiruna, breytingar á skólahaldi 4. maí nk. og kjaramál. Auk þess er sumarkveðja í tilefni dagsins.

Eftir að yfirvöld tilkynntu að breytinga væri að vænta á skólahaldi frá 4. maí næstkomandi hafa eðlilega margar spurningar vaknað. Í upphafi var eitthvað um óljósar eða jafnvel misvísandi upplýsingar. Kennarasambandið og rekstraraðilar skóla hafa því átt með sér töluvert samstarf til að reyna að tryggja að sem flestum álitamálum verði svarað með skýrum og afdráttarlausum hætti. Á vef Stjórnarráðsins má finna á einum stað helstu upplýsingar, spurningar og svör. Viðbúið er að frekari spurningar muni vakna og reynt verður að tryggja að svörin skili sér inn á vefinn.

 

Svo virðist sem kórónuveirufaraldurinn sé í stöðugri rénun í íslensku samfélagi. Læknar óttast þó að bakslag geti orðið verði ekki farið að öllu með gát. Það hefur verið mikil mildi að faraldurinn virðist ekki leggjast af miklum þunga á börn og ungmenni. Engin smit eru þekkt frá barni til fullorðins. Þó er ljóst að íslenskt samfélag, eins og önnur samfélög, hefur borið skaða af. Faraldurinn hefur kostað mannslíf og valdið þjáningum. Efnahagslegar afleiðingar hans verða verulegar. Á móti kemur að fjöldi fólks hefur með fórnfýsi, hugrekki og fagmennsku haldið skaðanum í lágmarki og jafnvel fundið leiðir til framfara og bóta. Samfélagið allt stendur í þakkarskuld við framlínufólkið sitt. Ekkert samfélag er sterkara en grundvöllur þess.

 

Það er þó auðvitað umhugsunarvert að stór hluti framlínufólks er jafnframt sá hópur í íslensku samfélagi sem einna erfiðast á með að ná fram sanngjörnum kröfum um réttindi og kjör. Baráttan er sívakandi og meðvindurinn hverfull. Nú nálgast fyrsti maí, dagurinn sem helgaður er baráttu launafólks fyrir betri kjörum og bættu samfélagi. Að þessu sinni mun dagurinn bera aðstæðunum vitni – en mikilvægi þess sem hann stendur fyrir hefur sjaldan verið meira.

 

Það ber tímunum vitni að þetta Epli er hið sextánda á árinu. Þau hafa öll nema eitt fjallað með einum eða öðrum hætti um kórónuveiruna og áhrif hennar á skólastarf. Vonandi verða tilefnin til Eplaskrifa jákvæðari það sem eftir lifir þessa afmælisárs Kennarasambandsins. Að minnsta kosti er ærin ástæða til að ljúka þessu Epli á jákvæðum nótum með innilegri sumarkveðju frá stjórn og starfsfólki Kennarasambands Íslands til alls félagsfólks með þökk fyrir samfylgdina í vetur.