Styttist í velsóttan leiðtogafund

Menntamálaráðherrar og kennaraforysta 22 ríkja sækja alþjóðlegan leiðtogafund um menntamál og málefni kennara (ISTP) – stærsta alþjóðlega viðburðar á sviði menntamála sem haldinn hefur verið hér á landi 24.-26. mars.
Menntamálaráðherrar og forystufólk kennarasamtaka tuttugu og tveggja ríkja heims sækja stærsta alþjóðlega viðburð menntamála sem haldinn hefur verið hér á landi - Alþjóðlegan leiðtogafund um menntamál og málefni kennara (ISTP) sem fer fram í Hörpu í Reykjavík dagana 24.-26. mars 2025. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands og Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra verða á meðal fundargesta. Hægt er að kynna sér fundinn nánar á vef Stjórnarráðsins.
ISTP stendur fyrir International Summit of the Teaching Profession og til fundarins koma ráðherrar menntamála og leiðtogar kennarasambanda frá ríkjum sem eiga aðild að OECD (Efnhags- og framfarastofnuninni). Leiðtogafundurinn er gott tækifæri fyrir ráðherra og leiðtoga kennara til að deila reynslu og þekkingu á hvernig best megi stuðla að gæðamenntun með öfluga kennara við stjórnvölinn, segir á vef Stjórnarráðsins. Hægt er að kynna sér fundinn og dagskrá hans nánar hér á vef ISTP.
Þetta verður í 15. sinn sem fundurinn fer fram og er umræðuefnið er helgað kennarastarfinu, áskorunum til framtíðar, starfsumhverfi og starfsþróun kennara og hvernig best megi innleiða menntaumbætur. Þar er reynslu og þekkingu deilt um hvernig best megi stuðla að gæðamenntun með öfluga kennara við stjórnvölinn. Fundargestir munu einnig heimsækja íslenska leik-, grunn- og framhaldsskóla og kynna sér íslenskt skólastarf. Katrín Jakobsdóttir stýrir fundinum en hún tók þátt í einum af fyrstu leiðtogafundum ISTP árið 2012, þá sem menntamálaráðherra.
„Fundurinn markar tímamót í sögu menntamála hér á landi. Hann leiðir í fyrsta sinn saman á Íslandi æðstu valdhafa á sviði menntamála ásamt leiðtogum kennaraforystunnar í viðræður um menntaumbætur,“ segir í fréttatilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Undirbúningur fyrir fundinn standi nú sem hæst.

Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, sótti ISTP ráðstefnuna í Singapúr í fyrra ásamt Ásmundi Einari Daðasyni þáverandi menntamálaráðherra og öðrum fulltrúum stjórnvalda og Kennarasambandsins.
Fulltrúar íslenskra stjórnvalda og Kennarasambandsins sóttu ISTP í Singapúr í fyrra. Við hátíðlega athöfn undir lok fundarins þar í landi var tilkynnt að næst færi hann fram hér í landi og tók þá Ásmundur Einar Daðason, þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, við keflinu úr höndum Chan Chun Sing menntamálaráðherra Singapúr.
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, sem sótti fundinn, sagði við tilefnið: „ISTP-ráðstefnan er í raun stærsti árlegi vettvangur samtals menntamálayfirvalda og stéttarfélaga kennara i þátttökulöndunum sem eru sannarlega þau sem við Íslendingar erum í hvað mestum samskiptum við þegar kemur að skólamálum. Það er heilmikill heiður en um leið risaverkefni fyrir KÍ að verða gestgjafi næsta vor en sýnir okkur líka hvað rödd Íslands er mikils metin þegar kemur að skólamálum. Við hlökkum mjög til að taka á móti fulltrúum þeirra landa sem koma til Íslands í mars 2025, bæði til að kynna þeim okkar starf en líka að eiga í innihaldsríkum samtölum til að læra af öðrum,“ segir Magnús Þór.

Menntamálaráðherrar 19 OECD-ríkja ásamt gestgjöfum í Singapúr 2024. Í ár verða þátttökuríkin 22.