Styttist í úthlutun orlofshúsa

Fréttir|1. febrúar 2022

Félagsmenn KÍ geta frá og með 22. febrúar skoðað sig um á Orlofsvefnum og sett fram óskalista yfir þau hús sem þeir kjósa í vikuleigu. Leggja verður óskalistann fram fyrir klukkan 11:59 á hádegi mánudaginn 14. mars 2022.

Félagsmenn KÍ hafa aðgang að miklum fjölda sumarhúsa og íbúða víðs vegar um land. Orlofssjóður KÍ á tæplega 60 eignir. Fyrir utan Flúðir, Akureyri og Kjarnaskóg, sem flestir félagsmenn þekkja, á sjóðurinn nú íbúðir á Siglufirði, Bifröst, Ísafirði og í Vestmanneyjum. Þá eru ótaldar tíu nýlegar ibúðir við Vörðuleiti í Reykjavík. Auk þess tekur sjóðurinn fjölda húsa á leigu og endurleigir félagsmönnum.

Hér að neðan er fyrirkomulag sumarbókana 2022 kynnt. Annars vegar er um vikuleigu að ræða og hins vegar Flakkara sem er leiga í tvær til sjö nætur. 

Vikuleiga – fyrirkomulag

Við úthlutun vikurleigu verður horft til réttinda félagsmanna, þ.e. punktaeignar og úthlutað samkvæmt henni. Vert er að taka fram að það breytir engu hvenær á opnunartímanum umsókn berst, hún mun raðast samkvæmt orlofsrétti (punktaeign) félagsmannsins.

Í ljósi mikillar aðsóknar félagsmanna í orlofshús KÍ verður sú breyting gerð á úthlutun að þeir félagsmenn sem fá vikuúthlutun í sumar verða ekki í forgangi sumarið 2023. Þeir öðlast aftur forgang sumarið 2024. Þannig verður forgangur í vikuúthlutun annað hvert ár. 

Þetta er gert til að fleiri félagsmenn eigi möguleika á að fá vikuúthlutun orlofseigna. Þessi breyting kemur ekki til með að hafa áhrif á bókanir flakkara. Eins og áður geta félagsmenn í FKE sem hafa látið af störfum ekki tekið þátt í vikuúthlutun en þeir geta bókað flakkara samkvæmt þeim úthlutunarreglum sem gilda um þá.

Hvernig er sótt um vikuleigu?

Félagsmaður getur sótt um fleiri en eina eign í vikuleigu. Góður tími gefst til að skoða og setja upp óskalista. 

  • 22. febrúar klukkan 12:00 á hádegi – opnað fyrir eignir í vikuleigu
  • 14. mars klukkan 11:59 á hádegi – lokað fyrir eignir í vikuleigu

Á ofangreindu tímabili getur félagsmaður skoðað þær eignir sem eru í boði í vikuleigu og sett upp sinn óskalista. Að hámarki er hægt að velja sex eignir.

Þegar félagsmaður hefur sett upp sinn óskalista þá sendir hann inn umsókn og hún verður virk í bókunarkerfinu Frímanni.
 
Mánudaginn 14. mars fer orlofskerfið yfir allar umsóknir sem bárust á tímabilinu og úthlutar í samræmi við punktaréttindi félagsmanna. Sama dag fær félagsmaðurinn tölvupóst þar sem honum er tilkynnt hvort og þá hvaða eign af sínum óskalista hann hefur fengið úthlutaða. Félagsmenn sem ekki fá úthlutun verða látnir vita í tölvupósti. Greiðsla þarf að berast fyrir kl. 12:00 á hádegi fimmtudaginn 17. mars 2022. 
 
Athugið: Ef félagsmaður vill ekki þá eign sem honum var úthlutað, getur félagsmaður valið að hætta við og/eða sleppt því að greiða og fellur þá umsókn niður. Þær eignir sem voru ekki greiddar fyrir tilsettan tíma verða afbókaðar og færast yfir í flakkaraleigu. 

Flakkarar – fyrstur kemur, fyrstu fær

Hugtakið flakkari er notað yfir leigu á bilinu tvær til sjö nætur. Opnað verður fyrir bókanir flakkara fimmtudaginn 17. mars klukkan 18:00. Fyrirkomulagið er einfalt; fyrstur kemur, fyrstur fær.

Opnunardagar fyrir bókanir byggja á punktaeign félagsmanna.

  • 17. mars kl. 18:00 – félagsmenn sem eiga 300 punkta eða fleiri
  • 18. mars kl. 18:00 – félagsmenn sem eiga 100 punkta eða fleiri
  • 19. mars kl. 18:00 – félagsmenn sem eiga 1 punkt eða fleiri
  • 20. mars kl. 18:00 – félagsmenn sem eiga 0 til -23 punkta
  • 20. mars kl. 18:00 – FKE-félagar sem eiga punkta

Fleira í boði Orlofssjóðs sumarið 2022

Hægt verður að kaupa eftirfarandi með niðurgreiðslu frá Orlofssjóði KÍ: 

  • Ferðavísanir fyrir hótelgistingar innanlands
  • Gjafabréf Úrvals Útsýnar og Sumarferða
  • Gjafabréf hjá Icelandair og Flugfélaginu Erni
  • Útilegukortið
  • Veiðikortið

Einnig verður hægt að sækja um styrk að hámarki kr. 7.500/15 pt. vegna göngu- og bátsferða (ekki ferjur) gegn framvísun kvittana.

Hefurðu spurningu? Netfang Orlofssjóðs er orlof@ki.is.