Styttist í sumarúthlutun Orlofssjóðs

Opnað verður fyrir umsóknir um vikuleigur á komandi sumri þann 18. febrúar næstkomandi.
Margir félagar eru nú þegar farnir að bíða með óþreyju eftir sumarúthlutun Orlofssjóðs KÍ. Að venju verður gott framboð eigna um allt land. Um helmingi eignanna verður deilt út með vikuleigu en hinn helmingurinn verður í boði í svokallaðri dagsleigu.
Verð hækkar lítillega frá síðasta sumri fyrir vikuna, en stendur í stað á dagsleigum. Í dag eru öll húsin í eigu KÍ með fríu neti og snjallsjónvarpi. Þá verður sumartímabilið lengra en venja er, eða frá 2. júní til 29. ágúst. Sumartímabil húsa í framleigu er þó misjafnt.
Fyrirkomulag úthlutunar
Vikuleiga
- Þriðjudagur 18. febrúar klukkan 12:00 á hádegi – opnað fyrir umsóknir um vikuleigur.
- Þriðjudagur 11. mars klukkan 11:59 á hádegi – lokað fyrir umsóknir um vikuleigur.
Á ofangreindu tímabili getur félagsmaður skoðað þær eignir sem í boði eru í vikuleigu og sett upp sinn óskalista. Að hámarki er hægt að velja sex eignir á listann og fær hver einstaklingur einungis eina viku úthlutaða.
Til að setja upp óskalista þarf að fara á Orlofsvefinn og velja þar flipann „umsókn um úthlutun“ og fylgja þar leiðbeiningum. Þegar settur hefur verið upp listi þá þarf að ýta á senda og umsókn verður þá virk í bókunarkerfinu. Það breytir engu hvenær á vikunum þremur umsókn um úthlutun berst. Þær fara allar í sama pott.
Vinsamlega athugið!
- Þeir sem fengu úthlutað sumarið 2024 fá ekki úthlutað 2025. Þetta kemur ekki til með að hafa áhrif á bókanir dagsleiga.
- Punktastaða þeirra sem sækja um sömu eign í sömu viku ræður því hver fær hana.
- Þær eignir sem ekki fara út í vikuúthlutun eru settar á vefinn með dagsleigueignum.
- Félagsmenn í FKE sem hafa látið af störfum geta ekki tekið þátt í vikuúthlutun en þeir geta bókað dagsleigur samkvæmt þeim úthlutunarreglum sem gilda um þær.
Dagsleigur
Hugtakið dagsleigur er notað yfir leigu á bilinu tvær til sjö nætur. Opnað verður fyrir þær bókanir mánudaginn 17. mars klukkan 18:00.
Bókunarfyrirkomulagið er einfalt; fyrstur kemur, fyrstur fær samkvæmt eftirfarandi:
Mánudagur 17. mars
18:00
félagar sem eiga 300 punkta eða fleiri
Þriðjudagur 18. mars
18:00
félagar sem eiga 100 punkta eða fleiri
Miðvikudagur 19. mars
18:00
félagar sem eiga 1 punkt eða fleiri
Fimmtudagur 20. mars
18:00
félagar sem eiga 0 punkta eða fleiri, ásamt félögum í FKE sem eiga punkta