Styttist í móttöku umsókna í Rannsóknasjóð KÍ

Ertu með góða hugmynd að rannsóknarverkefni? Þá er um að gera að kynna sér Rannsóknasjóð KÍ. Fyrirkomulagi umsóknarferlis hefur verið flýtt frá því sem áður var.
Stjórn Rannsóknasjóðs KÍ hefur gefið út hvaða áhersluatriði verða í öndvegi á styrkárinu 2026-2027.
Þau eru eftirfarandi:
- Daglegt starf félagsmanna, viðfangsefni sem spretta úr daglegri önn skólastarfsins.
- Starfsþróun sem styður við ný viðfangsefni, starfsaðstæður og faglegt skólastarf.
- Líðan nemenda og samskipti.
- Gæði kennslu og þróun kennsluhátta.
Þá hefur verið ákveðið að breyta fyrirkomulagi er varðar skilafrest umsókna og tímasetningu úthlutunar. Ferli sjóðsins hefur verið flýtt og verður opnað fyrir móttöku umsókna 31. október næstkomandi.
Félagsfólk hefur þó góðan tíma því umsóknagáttin verður opin til 1. febrúar 2026.
Ráðgert er að tilkynna um úthlutanir undir lok febrúarmánaðar 2026.
Mikilvægt að vita
Til að sækja um styrk í Rannsóknasjóð KÍ þarf að fylla út umsóknareyðublað. Umsækjandi, eða ábyrgðarmaður umsóknar, ef umsækjendur eru fleiri en einn, sækir í kjölfarið um styrk í Rannsóknasjóð KÍ á Mínum síðum og hleður upp umsóknareyðublaði og ferilskrá/m umsækjanda/enda með umsókn, ásamt öðrum fylgigögnum, ef við á.
- Hér er hægt að kynna sér regluverk Rannsóknasjóðs KÍ.
- Hér er hægt að kynna sér viðmið og timarammi sjóðsins.
- Hér er hægt að lesa meira um Rannsóknasjóð KÍ.
Rannsókn er kerfisbundin athugun og skráning á niðurstöðum gerð í þeim tilgangi að leita svara við fyrir fram skilgreindri rannsóknarspurningu. Fjölbreyttum aðferðum má beita við gagnasöfnun. Samstarfsverkefni tveggja eða fleiri félagsmanna njóta alla jafna forgangs. Ef spurningar vakna þá er einfalt að senda fyrirspurn á Mínum síðum.
Fyrstu rannsóknastyrkir sjóðsins voru afhentir árið 2019 og síðan þá hefur 31 verkefni verið styrkt. Hægt er að kynna sér styrkþega og rannsóknir þeirra hér.