Styttist í eina stærstu ráðstefnu fötlunarfræða

Sextánda ráðstefna Nordic Network on Disability Research, sem fer fram á Grand Hótel Reykjavík 10. til 12. maí verður stærsta fötlunarfræðiráðstefna Norðurlandanna frá upphafi fræðigreinarinnar – og mögulega sú stærsta í heiminum.
Ráðstefna Nordic Network on Disability Research (NNDR) er vettvangur fræðslu og samskipta, meðal annars á milli fræðafólks, aðila úr hagsmunasamtökum fatlaðs fólks, fagfólks, aðila í þjónustu og hjá yfirvöldum. Þátttakendur koma víðs vegar að; svo sem frá Norðurlöndunum, Evrópu, Bandaríkjunum og Kanada.
Auk fyrirlestra fjölda alþjóðlegra sérfræðinga í fötlunarfræðum verða kynntar um 500 rannsóknir í málstofum. Viðfangsefni rannsóknanna tengjast ýmsum sviðum í lífi fatlaðs fólks, svo sem menntun, atvinnu, sjálfstæðri búsetu, réttindagæslu, fjölskyldulífi, sjálfræði og birtingarmyndum fötlunar í samfélaginu.
Frumkvöðlar í öndvegi
Meðal aðalfyrirlesara er Theresia Degener, prófessor í fötlunarfræði við Bochum Center for Disability Studies. Hún hefur um árabil verið formaður eftirlitsnefndar við samning Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Lydia X. Z. Brown, aktívisti og aðjunkt í fötlunarfræðum við Georgetown University og Rannveig Traustadóttir, prófessor emerita við Háskóla Íslands, eru einnig meðal aðalfyrirlesara ráðstefnunnar.
Í fyrsta sinn í sögu ráðstefnu NNDR hefur Félag um fötlunarranssóknir lagt áherslu á þátttöku fræðafólks og annarra aðila á sviði rannsókna um Döff og heyrnarlaust fólk í undirbúningsvinnu sinni. Meðal aðalfyrirlesara er Hilde Haualand. Hún er fyrsti Döff einstaklingur sem gegnir stöðu prófessors í Noregi.
Eins og önnur ríki stendur Ísland frammi fyrir margþættum áskorunum í framkvæmd réttindasáttmála fatlaðs fólks. Nú þegar ráðstefnan er haldin á Íslandi býðst öllum þeim sem koma að málefnum fatlaðs fólks tækifæri til að kynna sér nýjustu rannsóknir, nálgun og aðferðir á sviði fötlunarfræða á Norðurlöndum og á alþjóðavísu. Mikilvægt er að skrá sig sem fyrst til að tryggja þátttöku.
Hér er hægt að skoða viðburðinn.
