Stytting vinnuvikunnar metin í nýrri reiknivél

Fréttir|25. apríl 2022

Ný reiknivél er komin í loftið en hún gerir fólk að skoða kostnað og áhrif styttingar vinnuvikunnar frá ýmsum hliðum.

Félag leikskólakennara hefur sett í loftið nýja reiknivél sem ætlað er að ná utan um og meta mögulegan kostnað við styttingu vinnuvikunnar í leikskólum.

Þá gerir reiknivélin fólki kleift að skoða hvernig hægt er að draga úr kostnaði og mæta styttingu vinnuvikunnar með styttri dvalar- og starfstíma. Einnig er hægt að skoða hvernig hækkun á hlutfalli dvalartíma barna af vinnutíma starfsfólks, samhliða betri vinnutíma, getur gefið vísbendingu um óhóflegt álag á starfsfólk. Er reiknivélin gott verkfæri til að skoða breytingar á hlutfallinu sem verður samhliða vinnutímastyttingu.

Reiknivél um styttingu vinnuvikunnar

Skoða aðrar reiknivélar