Stytting vinnuviku í leikskólum

Ýmsar útfærslur eru mögulegar og greiða félagsmenn atkvæði um þær útfærslur sem taka gildi fyrsta janúar 2021.
Í flestum sveitarfélögum stendur yfir formleg vinna við styttingu vinnuvikunnar en í núgildandi kjarasamningi Félags leikskólakennara er kveðið á um sama ramma og önnur stéttarfélög á opinberum markaði hafa hvað varðar styttingu vinnuvikunnar. Ýmsar útfærslur eru mögulegar og munu félagsmenn kjósa um þær útfærslur sem taka gildi fyrsta janúar 2021. Á þó nokkrum stöðum er þegar búið að kjósa.
Fyrsta skref á hverjum vinnustað var að stofna vinnutímanefnd sem annaðist undirbúning breytinga og leiddi samtalið á vinnustaðnum.
Annað skrefið í að innleiða styttingu vinnuvikunnar í dagvinnu er að vinnutímanefnd á hverjum vinnustað hefji undirbúninginn. Nefndin kynnir sér fræðsluefni um styttingu vinnuvikunnar og greinir stöðuna á vinnustaðnum til að draga fram gagnkvæman ávinning starfsfólks og stjórnenda.
Dæmi um þetta er greining á þjónustu og helstu álagspunktum, hversu staðbundið starfsfólk er við störf sín og sóknarfæri í vinnufyrirkomulagi, verklagi, samvinnu og tímastjórnun. Sömuleiðis hvaða breytingar þarf að gera til að nýta megi tímann betur til að ná hámarksstyttingu. Afrakstur vinnunnar nýtist sem fóður fyrir samtal á vinnustaðnum sem allt starfsfólk tekur þátt í.
Mikilvægt er að hafa í huga að þetta er samvinnuverkefni stjórnenda og starfsmanna. Hvorki einstaka sveitarfélög, starfsfólk eða stjórnendur hafa meira vald en aðrir í vinnunni. Náist ekki samkomulag um breytt skipulag vinnutíma styttist vinnutími starfsfólks sem nemur 13 mínútum á dag eða 65 mínútum á viku miðað við 40 stunda vinnuviku.
Vinnan hefur gengið mjög vel á mörgum vinnustöðum og áhugavert er að heyra af reynslu eins leikskóla í Reykjavík. Guðrún Jóna Thorarensen, leikskólastjóri Sólborgar í Reykjavík, varð fyrir svörum.
„Við á Sólborg tókum þátt í tilraunaverkefninu um styttingu vinnuviku og fórum við í mikla vinnu þar sem rýnt var í allt skipulag skólans og sérstaklega dagskipulagið. Það var okkur ljóst frá byrjun að það væri ekki hægt að fara inn í þessa vinnu fyrr en sú vinna væri búin. Við hefðum ekki getað farið í styttingu vinnuviku án þess að gera breytingar á starfi okkar samhliða því. Okkar kerfi er þannig að starfsfólk hættir að vinna kl. 12 einn dag í viku og lagt var upp með að deildir nái að leysa úr sínum málum og þurfa deildarstjórar að halda utan um það verkefni. Vinnan hvílir að langmestu leyti á deildarstjórunum. Okkar leiðarljós er að engir sjensar eru teknir í starfseminni, allt er traust og trúverðugt. Til að byrja með þurfti að fara yfir dagsskipulagið þannig að þegar starfsmenn fara heim kl. 12 þá þarf ákveðnum störfum að vera lokið. Til að mynda þarf undirbúningstíma starfsmanna að vera lokið fyrir hádegið og þannig er passað upp á að faglega starfið skerðist á engan hátt.
Deildarstjórar eru með fastan vinnutíma inni á deild frá kl. 8 - 13.30, eftir það er hlé sem er í hálftíma og loks tveir tímar í undirbúning sem þeir stýra sjálfir hvort þeir vinni heima fyrir eða á vinnustaðnum. Þeir eru allir með sína eigin fartölvu með VPN tengingu og hefur það gefist sérlega vel að geta boðið upp á þennan sveigjanleika,“ segir Guðrún Jóna og bætir við að „við þurftum að færa hlé starfsfólks en samkvæmt samningum átti það 35 mín í hlé en við skárum það niður um fimm mínútur og er hléið því núna hálftími. Hlé starfsfólks var fært til og byrjar það kl. 11.30 - 12.00 og síðara hléið er kl. 12.00 - 12.30. Þeir starfsmenn sem eru að fara í styttingu taka ekki hlé. Við reynum að miða við að koma fleirum í hlé á milli kl. 11.30 - 12.00 en það er alfarið deildanna að ákveða það fyrirkomulag.
Það er líka kostur að geta lokað úti því þá þarf skólinn minni mönnun og deildirnar geta unnið meira saman.
Við erum með útiveru fyrir og eftir hádegi en útiveran eftir hádegi er eftir drekkutíma barna eða eftir kl. 15.00. Við á leikskólanum Sólborg höfum skilað úti í sex ár þannig það var ekki breyting fyrir okkur að skila úti og allir sáttir við það enda aldrei komið til tals síðustu sex árin að breyta því. Það er líka kostur að geta lokað úti því þá þarf skólinn minni mönnun og deildirnar geta unnið meira saman. Við breyttum okkar útreikningum en við reiknum undirbúningsafleysingu og veikindaafleysingu inn á útiverudeildarnar“.
Guðrún Jóna telur stéttina vera á réttri leið: „Vissulega hafa orðið miklar breytingar sem leikskólinn hefur þurft að takast á við á skömmum tíma. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar sem kom út í febrúar 2017 og bar heitið Kostnaður og skilvirkni kennaramenntunar - Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri, kom fram að minnkandi aðsókn í kennaranám væri alvarleg vísbending um yfirvofandi kennaraskort hér á landi. Að mati Ríkisendurskoðunar hafi stjórnvöld ekki hugað nægilega vel að dvínandi aðsókn í kennaranám og aðsteðjandi hættu á kennaraskorti. Í framhaldinu lagði menntamálaráðherra fram tillögu þess efnis að frá 1. janúar 2020 tæki gildi eitt leyfisbréf fyrir öll skólastigin. Leikskólinn þyrfti verulega að taka sig á þegar kemur að vinnuumhverfi leikskólakennara og samræma það starfsumhverfi annarra skólastiga.
Í framhaldi af þessu koma nýir kjarasamningar leikskólakennara þar sem undirbúningstími deildarstjóra fer í 10 tíma á viku fyrir utan hlé. Þetta gerir það að verkum að farið var í að breyta uppsetningu á vinnutíma deildarstjóra, það er að segja að viðvera þeirra verður fimm og hálfur tími inn á deild, hálftími í hlé og tveir tímar í undirbúning.
Þá kom stytting vinnuviku og Félag leikskólakennara lagði áherslu á að félagsmenn safni sinni styttingu þannig að deildarstjórarnir á Sólborg t.d. fara í frí um jól, páska, vetrarfrí og sumar eða sem samsvarar 21.8 dögum á ári. Heimsfaraldurinn hefur gert það að verkum að við fáum þau tilmæli að starfsmenn eigi að taka undirbúning sinn heima og hefur tæknin sýnt okkur að það er mjög vel gerlegt og í raun hefðum við átt að vera búin að bjóða upp á þessa leið mun fyrr enda sveigjanleikinn af hinu góða.
Heimsfaraldurinn hefur gert það að verkum að við fáum þau tilmæli að starfsmenn eigi að taka undirbúning sinn heima og hefur tæknin sýnt okkur að það er mjög vel gerlegt
Ég fagna öllum þessum skrefum og tel þau gefa okkur tækifæri til að þróast áfram og verða öflug stofnun þar sem við náum að vinna gegn alltof hárri starfsmannaveltu, veikindaprósentu, náum að minnka álag sem kemur ítrekað fram í starfsmannakönnum hjá okkur og við verðum að berjast gegn. Með styttingu vinnuviku náum við að laga vinnutíma starfsmanna, fleiri hlutavinnustarfsmenn voru tilbúnir að hækka við sig vinnuprósentu en ég gekk ekki út frá því að fólk myndi fækka við sig vinnustundum.
Rekstrarkostnaður skólans hækkaði ekki meðan á tilraunaverkefninu stóð og má það rekja til minnkandi veikinda, minni starfsmannaveltu, skreppin fóru út úr jöfnunni, betri vinnumenningu og aukin starfsánægju. Þegar allir þessir þættir eru lagðir saman skila þeir sér í meiri hagkvæmni og betri rekstri þegar á heildina er litið.”
Í lokin kemur Guðrún Jóna inn á hugleiðingar sem eru henni ofarlega í huga: „Ég met það svo að næsta skref leikskóla Reykjavíkur sé að stækka einingarnar og sameina þær. Það þarf að fækka minni leikskólaeiningum í Reykjavík og ég hefði viljað sjá framtíðaráætlun um þá vinnu hjá borginni þar sem áhersla væri á að sameina tveggja og þriggja deilda leikskóla í Reykjavík við nærliggjandi skóla. Það er ekki hægt að horfa fram hjá þeirri staðreynd að leikskólakennurum hefur farið mjög fækkandi hjá borginni.
Ég met það svo að næsta skref leikskóla Reykjavíkur sé að stækka einingarnar og sameina þær.
Fagleg sjónarmið vega þungt í þessu samhengi, vinnustaðir þurfa að vera aðlaðandi og laða að leikskólakennara. Það er samkeppni um gott fólk. Leikskólakennara vilja vinna inn í skólum með öðrum leikskólakennurum þar sem þeir hafa faglegan stuðning í starfi sínu. Það er erfitt að vera eini leikskólakennarinn starfandi innan skólans eða fáir og þurfa að leita eftir faglegum stuðningi fyrir utan síns skóla.
Við verðum að taka mið af því að nú er ný kynslóð stjórnenda að taka við sem hefur menntað sig margir hverjir í stjórnun menntastofnana og hafa því góðan grunn til að stýra stærri einingum. Það væri áhugavert að bjóða upp á stjórnunarteymi stórra eininga þar sem ekki væri einn leikskólastjóri og aðstoðarleikskólastjóri heldur stjórnendateymi þar sem báðir aðilar bæru jafna ábyrgð á stjórnun skólans. Nám leikskólakennara hefur breyst á skömmum tíma frá því að vera nám við Fósturskóla Íslands þar sem inntökuskilyrðin voru tveggja ára nám í framhaldskóla í það að vera nám á háskólastigi kennt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands sem lýkur með meistaraprófi," segir Guðrún Jóna Thorarensen, leikskólastjóri Sólborgar í Reykjavík.