Styrkurinn felst í að vera saman í einu liði

Fréttir|22. desember 2025
Ki Radstefna Magnus Jonsson 0343 1 (1)
Skólavarðan

Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, hefur nú gegnt embætti í nærfellt fjögur ár, og sannast sagna hefur það sem af er kjörtímabilinu verið afar viðburðaríkt. Magnús Þór er þó hvergi hættur og brennur fyrir kjaramálum stéttarinnar og framtíðarsýn í skólamálum.

Ritstjórar Skólavörðunnar settust niður með Magnúsi á dögunum og spurðu hann hvað stæði upp úr í starfi KÍ síðustu misserin og hver væru brýnustu verkefnin á sviði kjara- og skólamála inn í framtíðina. Viðtalið var tekið áður en ljóst varð að Magnús Þór yrði áfram formaður næstu fjögur árin.

„Þetta hefur verið afskaplega góður og gefandi tími hér á skrifstofu KÍ. Starfið hefur verið alls konar og að sumu leyti nokkuð öðruvísi en ég reiknaði með. Kjaramálin skipa stærstan sess, ólíkt formönnum sem voru við störf á undan mér hefur virðismatsvegferðin kallað á meiri afskipti formanns en áður og ég hef lagt mig allan fram í kjaramálunum,“ segir Magnús.

Magnús bjó yfir ríkri reynslu af stéttarfélagsmálum þegar hann settist í stól formanns KÍ. Fyrir utan að eiga að baki 28 ára feril sem kennari og skólastjóri, í fámennum og fjölmennum skólum innan borgarmarka og utan, hafði hann verið trúnaðarmaður og átt sæti í trúnaðarráði Kennarafélags Reykjavíkur, verið formaður Skólastjórafélags Reykjavíkur og Skólastjórafélags Vesturlands auk þess að hafa átt sæti í samninganefnd Skólastjórafélags Íslands.

Magnús segir starf formanns fjölbreytt og ánægjulegt en það hafi komið sér á óvart hversu víðfeðmt og yfirgripsmikið það sé. „Formaður þarf að sinna mörgum verkefnum sem fer lítið sem ekkert fyrir í umræðunni og starfsemi sambandsins er meiri en ég ímyndaði mér. Þar má nefna samtöl og samstarf við fólk í stjórnkerfinu og stjórnmálunum. Einnig er mikið samstarf við önnur stéttarfélög og hjá helstu kennarasamtökum á alþjóðavettvangi,“ segir Magnús.

 

552A1127

John Bangs, Katrín Jakobsdóttir fundarstjóri, Magnús Þór og Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra á ISTP 2025 – stærsta leiðtogafundi á sviði menntamála. ISTP 2025 fór fram í Hörpu í mars.

 

Hinn daglegi taktur í skólastarfi er frábrugðinn taktinum á skrifstofu KÍ. „Það er ákveðin hringiða í skólanum og hver skóladagur er fullur af áskorunum sem þarf að bregðast við. Sem formaður hef ég þurft að læra að það tekur lengri tíma að leysa úr mörgum verkefnum og þau krefjast mikillar yfirsýnar og yfirlegu. Ég segi stundum að maður þurfi að eiga margar skikkjur í þessu starfi, og skipta þeim út eftir því hvert samtalið og verkefnið er hverju sinni.“

Sterkari saman

Kjarabarátta kennara síðasta vetur var hörð og vakti gríðarlega athygli í samfélaginu. Kennarar stóðu saman sem einn maður og það gekk á með verkföllum og baráttufundum um landið allt. Spurður hver hafi verið stærsti sigurinn segir Magnús ýmislegt koma þar til.

„Aðdragandinn að baráttu síðasta vetrar var langur og má segja að fyrstu skrefin hafi verið stigin á árinu 2022 þegar umræðan um jöfnun launa milli almenna og opinbera markaðarins fór í þann farveg að Kennarasambandið ákvað að fara sameinað inn í þá umræðu. Öll aðildarfélögin stóðu saman og þótt vissulega hafi vinnan stundum verið tilfinningarík þá áttuðum við okkur fljótt á því hversu mikill styrkur fólst í því að vera í einu liði. Stóri sigurinn Ég vil að skólinn sé fyrir alla og að við teygjum okkur eins langt og þarf til að hver einasti einstaklingur fái að njóta sín á eigin forsendum. var kannski að okkur tókst að fara sameinuð alla leið í mark og undirrita kjarasamninga,“ segir Magnús.

Kjarasamningsgerðin var, að sögn Magnúsar, krefjandi verkefni enda aðildarfélögin sjö talsins og skólastig og skólagerðir ólík. „Við þurftum iðulega að stilla okkur saman og rifja upp hvernig kennarahjartað slær. Það var ekki síður stór sigur að finna hvernig félagsfólkið okkar stóð saman og veitti okkur ómetanlegan stuðning. Við fundum sterkt fyrir þessum stuðningi þegar við sátum dagana langa í Karphúsinu og þetta var enginn smá innblástur fyrir samninganefndirnar.“

Viðræðunefnd KÍ var skipuð formönnum aðildarfélaganna, Félags leikskólakennara, Félags grunnskólakennara, Félags framhaldsskólakennara, Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, Félags stjórnenda leikskóla, Félags stjórnenda í framhaldsskólum og Skólastjórafélags Íslands. Magnús leiddi og leiðir enn starf nefndarinnar.

„Það er enginn vafi í mínum huga að við náðum betri samningum sameinuð en ef félögin hefðu gert kjarasamning hvert fyrir sig. Stærri og sterkari félögin styrktust enn frekar og minni félögin nutu ávinnings sem kannski var meira sýnilegur þegar upp var staðið. Mestu skipti þó að öllum var ljóst, hvort sem það voru launagreiðendur, stjórnmálamenn eða almenningur, að kennarastéttin stóð þétt saman. Á þeim forsendum tókst okkur að stilla upp sameiginlegri sýn til framtíðar,“ segir Magnús.

„Við viljum að okkar fagfólk haldi um stýrið í skólamála umræðunni og það er mín einarða skoðun að árangur í skólastarfi náist ekki nema skólasamfélagið sé virkur þátttakandi í umræðunni“

Hann segir ekkert annað í kortunum en að viðræðunefnd KÍ haldi samstarfinu áfram. „Við höfum náð að halda takti og augljóst að félagsfólkið okkar kunni að meta þetta. Það sást vel í kosningum um kjarasamningana. Kjaramálin hafa verið stærsta mál nefndarinnar en við höfum líka rætt önnur mál, svo sem innra starf sambandsins og skólamálin frá ýmsum hliðum. Það er svo margt sem sameinar stéttina þótt starfsvettvangurinn sé margbreytilegur.“

Vegferð um virði kennarastarfsins

Kennarasambandið og aðildarfélög þess skrifuðu undir kjarasamninga í febrúar á þessu ári og gildistími þeirra er til ársins 2028. Þar með er þó ekki hlé í kjaramálum enda tók við svokölluð virðismatsvegferð, sem hefur staðið frá síðasta vetri og mun standa vel fram á næsta ár, og jafnvel lengur. En hvað felst í virðismati kennarastarfsins? 

„Í stuttu máli gengur vinnan út á að búa til virðismatskerfi sem ætlað er að meta virði starfa kennara samanborið við sambærilegar stéttir. Það skortir skýrari skilgreiningu milli launagreiðenda og félagsfólks KÍ um hvað kennarastarfið feli í sér. Jafnlaunastofa leiðir þetta verkefni og það hefur gengið ágætlega hingað til. Enn er þó töluvert í land og það skipti okkur hjá KÍ miklu að ná inn fyrirvörum í tímalínu verkefnisins. Gert er ráð fyrir bráðabirgðamati á stöðu verkefnisins í október á næsta ári og þá munum við sjá hvaða ljósi það varpar á kjaralega stöðu félagsfólks KÍ gagnvart öðrum sambærilegum stéttum. Við vonum auðvitað að þessu muni miða vel áfram og að við finnum þráð sem hægt verður að vefa áfram.“

Kennarasambandið fagnar 25 árum á þessu ári en það tók formlega til starfa á nýársdag árið 2000. Tímamótunum var fagnað með veglegu Skólamálaþingi KÍ í byrjun nóvember. Skólamálaþingin eru árlegur viðburður í starfsemi KÍ og fjalla jafnan um fagleg málefni kennara.

KÍ er nefnilega ekki bara stéttarfélag heldur líka fagfélag. Magnús er spurður hvort rödd KÍ sé jafnsterk á báðum sviðum. „Síðan við Jónína Hauksdóttir tókum við embættum okkar árið 2022, ég sem formaður og hún varaformaður, þá höfum við reynt að gæta vel að því að þessir tveir málaflokkar haldist þétt í hendur. Við fórum til dæmis í samstarf við Félagsvísindastofnun árið 2023 um að leggja stóra könnun fyrir okkar félagsfólk. Þar spurðum við út í starfsumhverfi, kennarastarfið, fagmennsku og fleira auk kjaramálanna. Niðurstöðurnar voru bæði áhugaverðar og gagnlegar og í kjölfarið héldum við stóra ráðstefnu í Hörpu undir yfirskriftinni Raddir skólafólks í fyrirrúmi,“ segir Magnús.

Hann segir brýnt að ræða skólamálin af dýpt og festu. Á sama tíma eru kjaramálin alltaf fyrirferðarmikil, enda bundið í lög að meginhlutverk stéttarfélags sé að berjast fyrir bættum kjörum félagsfólks. „Við sinnum náttúrlega mikilli réttindabaráttu fyrir okkar fólk á degi hverjum. Við búum svo vel að hafa öflugt starfslið hér á skrifstofunni sem gerir sitt besta til að leysa úr málum félagsmanna sem oftar en ekki varða ágreining um kaup og kjör.“

1046639 (1)

Kátir félagar á baráttudegi verkalýðsins. Magnús Þór ásamt Guðjóni Hreini Haukssyni, formanni FF, og Ingibjörgu Karlsdóttur, sérfræðingi hjá FF

Magnús segir ríkja samstöðu meðal forystusveitar KÍ um að sambandið eigi að vera í senn öflugt stéttarfélag og sterkt fagfélag. „Við fórum í mikla ímyndarherferð síðasta vetur þar sem við beindum sjónum að faglegum málum og bentum á að börnin í samfélagi okkar eigi skilið fagmennsku og stöðugleika í skólanum. Ég held að allir geti verið sammála um þetta,“ segir Magnús og bætir við að í kjölfar herferðarinnar og kjarabaráttu liðinna mánaða hafi umræða um menntamál aukist til muna.

„Ein af stóru spurningum samtímans er hvað viljum við fá út úr skólastarfi og hvernig er best að menntun barnanna okkar sé háttað. Hvað mig sjálfan varðar þá brenn ég fyrir ákveðnum hugsjónum. Ég vil að skólinn sé fyrir alla og að við teygjum okkur eins langt og þarf til að hver einasti einstaklingur fái að njóta sín á eigin forsendum.“

„Við vitum að það hafa orðið heilmiklar breytingar síðustu 20 árin. Sem dæmi má nefna að í sumum samfélögum eða hverfum er nú hátt hlutfall nemenda sem hefur íslensku ekki að móðurmáli. Félagslegur bakgrunnur er líka breyta sem þarf að taka tillit til. Þetta er mikið verkefni en ef við ætlum að ná árangri sem gott og mannvænlegt samfélag þá verðum við að horfa í kringum okkur og finna leiðir sem gagnast okkar börnum best,“ segir Magnús.

Raddir kennara þurfa að heyrast

Magnús segir skorta á framtíðarsýn til langs tíma þó að menntastefna til 2030 sé ágæt fyrir sitt leyti og nokkur áfangaskref hafi náðst á þeirri leið. „Það er samt ákveðið flækjustig í þessu ferli sem má skrifa á umrót stjórnmálanna en vegna stjórnarskipta, meðal annars, hefur ekki tekist að afgreiða mikilvæg lög eins og stóð til. Þar á meðal löggjöf um námsgögn eða innleiðingu farsældarlaga í skólastarfi.“

Lifandi umræða og samtal milli aðila er lykilþáttur á leiðinni til árangurs, að sögn Magnúsar. „Það er okkar hlutverk, hjá KÍ, að búa til umræðuvettvang þar sem raddir kennara, stjórnenda og ráðgjafa fá að heyrast hátt og vel. Við þurfum að rækta sambandið við félagsfólkið inni í skólunum og heyra hvað þau hafa fram að færa.“

„Við viljum að okkar fagfólk haldi um stýrið í skólamálaumræðunni og það er mín einarða skoðun að árangur í skólastarfi náist ekki nema skólasamfélagið sé virkur þátttakandi í umræðunni. Það þýðir ekkert fyrir ráðherra eða skólastjórnanda að segja fólki að gera hitt eða þetta nema búið sé að kanna landið meðal kennaranna. Hefur hópurinn þær bjargir sem eru nauðsynlegar og er hann sammála stefnunni?“

Magnús segir kennarastéttina fyrir löngu hafa sannað að hún sé fagstétt fram í fingurgóma, stétt sem vilji börnum og ungmennum allt það besta. „Við þurfum að byggja undir þann kraft sem er að finna í skólunum og tryggja að hver einasti nemandi, hvort sem hann er í leik-, grunn-, framhalds- eða tónlistarskóla, fái endurspeglun í því hver hann er og að komið sé til móts við hans þarfir. Þetta verður ekki gert með minnisblaði heldur í hverjum skóla fyrir sig,“ segir Magnús.

Magnús segir kennarastéttina fyrir löngu hafa sannað að hún sé fagstétt fram í fingurgóma, stétt sem vilji börnum og ungmennum allt það besta

Menntapólitík og samskipti við þingmenn, ráðherra og bæjarfulltrúa eru fastur liður í starfi stéttar- og fagfélags á borð við Kennarasambandið.

„Þetta er eitt af þeim verkefnum sem við sinnum af alúð enda skiptir máli að eiga í samtali við stjórnvöld og þau sem ráða þegar kemur að umgjörð skólastarfs, og ekki síður til að standa vörð um kennarana okkar. Vettvangur stjórnmálanna er náttúrlega svolítill frumskógur og má geta þess að ég hef átt í samskiptum við þrjá menntamálaráðherra á kjörtímabilinu. Það er samt ótrúlega mikilvægt að ná gagnvirku samtali við menntayfirvöld um áherslur í skólamálum til dæmis,“ segir Magnús.

Dælt er heima hvað

Kennarasambandið er í margs konar alþjóðlegu samstarfi á sviði menntamála. „Dælt er heima hvað,“ segir Magnús og vitnar í Hávamál. „Rödd Íslands er mikils metin í alþjóðlegu samstarfi á vettvangi menntamála. Þetta varð mér ljóst mjög fljótt eftir að ég tók við embætti formanns. Árangur okkar í kjaramálum er hlutur sem fólk í öðrum löndum horfir til og við erum klárlega á þeim stað að vera þjóð meðal þjóða.“

Magnús situr í stjórn Norræna kennarasambandsins (NLS) og Evrópusambands kennarasamtaka (ETUCE) en bæði samböndin eru öflugir málsvarar kennara. „Við höfum til að mynda notið góðs af því hversu mikið samtal fer fram á vettvangi norrænu félaganna á sviði kjaramála. Um er að ræða reglulegan samráðsvettvang sem hittist einu sinni á ári, en við tölum oftar saman ef þörf krefur. Þá má geta þess að við erum þessa dagana í beinu sambandi við Norðmenn vegna áforma okkar um að sækja mál fyrir félagafrelsisdeild ILO.“

„Þá höfum við útskýrt virðismat starfa fyrir okkar norrænu kollegum. Auk kjaramálanna eru faglegu málin líka stór enda viðfangsefnin svipuð á hinum Norðurlöndunum. Hið pólitíska landslag er svipað, sveitarfélög gegna svipuðu hlutverki og svo mætti áfram telja,“ segir Magnús og bætir við að norræna samstarfið hafi einnig í för með sér gagnlega fundi þar sem menntamálaráðherrar allra Norðurlandanna komi saman.“

„Mig langar líka að geta samstarfs sem gengur undir nafninu UTNORD en það er skipað kennarasamböndum frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi. Við höfum átt í samstarfi síðan 2023, þjóðirnar þrjár í útnorðri. Ástæðurnar eru einkum tvær, annars vegar sú að þessi lönd búa við mjög lík viðfangsefni þegar kemur að skólakerfunum, bæði hvað varðar umgjörð og verkefni ólíkra skólagerða í hverju samfélagi. Hins vegar er það sú staðreynd að þessi lönd fá samtals jafn mörg atkvæði innan Norrænu kennarasamtakanna, NLS, og hvert hinna fjögurra stóru.“

 


Samstarf þjóðanna í útnorðri; Íslands, Færeyja og Grænalnds. Fundað var í Reykjavík og á Snæfellsnesi í byrjun september. Sanna á Løgmansbø, Jacob Eli S. Olsen, Magnús Þór Jónsson, Guðjón Hreinn Hauksson, Simon Lennert, María Chun Nielsdóttir, Þorkatla Sumarliðadóttir, Jónína Hauksdóttir, Birita Hammer Jakobsons og Elna Thomsen Heilmann. Ólafsvíkurkirkja er í baksýn.

 

Magnús segir UTNORD mikilvægan samræðuvettvang. „Við eigum samtöl og reynum að læra hvert af öðru. Nú er staðan sú að Færeyingar og Grænlendingar eru að ganga í gegnum samfélagsbreytingar sem hófust hérlendis fyrir 20 árum, þar sem innflytjendum er að fjölga í löndunum sem þýðir að nemendum með annað móðurmál fjölgar. Við höfum gert okkar besta til að miðla okkar reynslu til þessara góðu frændþjóða.“

Heimsmeistaramót í menntamálum

Stærsti leiðtogafundur í menntamálum, ISTP, fór fram í Hörpu í mars síðastliðnum. Menntamálaráðuneytið skipulagði fundinn í þéttu samstarfi við Kennarasambandið. Leiðtogafundur þessi hefur verið haldinn víða um heim síðan árið 2011. Í Hörpu mættu menntamálaráðherrar og forystufólk kennarasamtaka frá 22 löndum.

„Það var mikill heiður fyrir okkur að fá að halda leiðtogafundinn. Verkefnið var risastórt á alla kanta og mætti kannski segja að það hafi verið á pari við þegar við héldum HM hér á landi 1995. En með samhentu átaki starfsfólks í ráðuneytinu og hjá KÍ tókst að leysa verkefnið með sóma. Menntamál á heimsvísu eru rædd á fundinum, viðfangsefnin eru margs konar og leiðirnar að lausn þeirra ræddar með mjög skipulegum hætti.“

„Þar sem við vorum gestgjafar höfðum við heilmikið um þema fundarins að segja. Eitt af því sem við settum á listann var yngribarnakennsla. Við vitum að leikskólinn okkar er eftirtektarverður á heimsvísu, en líka okkar sýn á skólastarf almennt. Sú staðreynd að fundurinn var haldinn hér er ákveðin viðurkenning á því að við séum að gera hluti í skólastarfi sem eru mikilvægir fyrir menntasamfélög um víða veröld,“ segir Magnús.

Alþjóðamálin eru Magnúsi hugleikin og hann fylgist vel með baráttu Alþjóðlegu kennarasamtakanna, Education International (EI), fyrir opinberu skólakerfi um heim allan. David Edwards, aðalritari EI er Magnúsi að góðu kunnur en hann hefur heimsótt Ísland nokkrum sinnum og veitt áðurnefndu UTNORD-samstarfi aðstoð og ráðgjöf.

„Já, það eru blikur á lofti og hægri öfgaöfl hafa náð fótfestu í mörgum löndum, öfl sem vilja einkavæða skólakerfin í auknum mæli. Þá erum við einnig að horfa á aðra ógn, en það er þegar ríkisvaldið stígur inn í skólastarfið með beinum hætti; háskólum er lokað og námsgreinar bannaðar. Ýktasta dæmið er líklega frá Rússlandi þar sem búið er að teikna Úkraínu upp sem nasistaríki. Því miður sér þessa einnig stað í Evrópu; innræting fer vaxandi. Við verðum að taka þessa hluti föstum tökum því skóli getur aldrei verið skóli fyrir alla ef hann starfar í skjóli innrætingar stjórnvalda. Við verðum að gera greinarmun á umræðu og innrætingu.“

Brennur fyrir skýrri sýn í skólamálum

Níunda þing Kennarasambandsins verður sett miðvikudaginn 15. apríl 2026 og undirbúningur fyrir það er kominn á fulla ferð. En hvaða væntingar hefur Magnús til komandi þings?

„Ég held að þingið á næsta ári verði að sumu leyti frábrugðið fyrri þingum. Það hefur verið ómetanlegt fyrir mig að upplifa þennan ofboðslega stuðning sem félagsfólk KÍ sýndi mér og öðrum í forystunni síðasta vetur, á tíma sem við stóðum í margháttuðum aðgerðum. Við sáum að keðjur KÍ voru sterkar og þær virkuðu; trúnaðarmenn, svæðaformenn, grasrótin og fólkið á skrifstofunni, öll stóðu þau sig með hinni mestu prýði.“

„Ég mun aldrei gleyma kvöldinu þegar viðræðunefndin ákvað að rölta niður í bæ eftir langan dag í Karphúsinu. Við höfðum heyrt að kennarar ætluðu að koma saman og mótmæla undir stefnuræðu forsætisráðherra. Þegar við komum á Austurvöll voru þar yfir þúsund kennarar, geggjuð stemning og ég var allt í einu kominn með gjallarhorn í aðra hendi. Svona augnablik gleymast ekki,“ segir Magnús og bætir við, til að gera langa sögu stutta, að hann vonist til að baráttuandi kennarastéttarinnar muni svífa yfir þinginu og sameinuð kennarastétt verði enn sterkari en áður.

Samtal við þjóðina

Magnús hefur, eins og áður hefur verið sagt, ákveðið að bjóða sig fram til áframhaldandi setu á formannsstóli KÍ. „Mig langar að halda áfram, ég er ekki feiminn að segja það. Mig langar að ýta mörgum málum vel áfram. Okkur hefur, að mínu viti, tekist vel að sýna og sanna mikilvægi skólastarfs í samfélaginu á kjörtímabilinu, en við erum að mörgu leyti stödd í miðri á,“ segir Magnús og heldur áfram, „ég vil gera mitt til að kalla fram samtal við þjóðina um hvernig við viljum sjá skólakerfið okkar þróast til framtíðar.“

„Við þurfum að velta öllum steinum við og skoða skólagerðirnar okkar fjórar með það að markmiði að átta okkur á hvað þarf að gera og hvernig. Þetta er samtal sem þjóðin þarf að eiga, stjórnmálamenn, fræðasamfélagið, foreldrar, nemendur og síðast en ekki síst Kennarasambandið með sína kennara í fararbroddi. Við verðum að setja fram metnaðarfulla heildarsýn, rækta skólasamfélögin okkar og efla kennara, stjórnendur, ráðgjafa og starfsfólk skólanna til enn frekari dáða,“ segir Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ.

10. febrúar 2025. Austurvöllur, forsætisráðherra flytur stefnuræðu í þinghúsinu. Ríflega þúsund kennarar láta vel í sér heyra á Austurvelli og krefjast samninga strax.