Styrkjum kennara í starfi

Fréttir|9. febrúar 2024
Pistill Pistill

Fjölbreytt fræðsla verður í boði fyrir félagsfólk KÍ allan ársins hring. „Von okkar er sú að umfjöllun um skólamál og sú fræðsla sem stendur til boða bæði styrki kennara í starfi og kveiki áhugaverðar umræður í skólasamfélaginu“, skrifar Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ.

Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, skrifar:

Skóla- og fræðslumálum verður gert hátt undir höfði árið 2024 og dagskráin er spennandi og þétt. Fræðslunefnd Kennarasambandsins hefur sett saman fræðsludagatal með reglulegum  fundum fyrir félagsfólk fyrir árið 2024.  

Fundaröðin, FRÆ, samanstendur af klukkustundarlöngum fjarfundum, sem fara fram þriðja miðvikudag í mánuði á milli klukkan tvö og þrjú. Erindin verða gerð aðgengileg félagsfólki á vefnum fyrir þau sem ekki ná að sækja fund í streymi.  

Markmiðið með fundunum er að veita félagsfólki fræðslu sem snertir bæði beint og óbeint öll svið kennslu og skólamála og stefnt er að því að fundaröðin verði fastur liður í fræðslustarfsemi Kennarasambandsins.  

Fyrirlestur febrúarmánaðar er ekki af verri endanum. Í næstu viku, miðvikudaginn 14. febrúar, fjallar dr. Valdís Jónsdóttir sérfræðingur um raddheilsu kennara en rannsóknir sýna að upp undir helmingur kennara þjáist af álagseinkennum í raddfærum. 

Svo stígur hver sérfræðingurinn af öðrum á stokk á næstu mánuðum: 

  • Mars: Dísa B. Jónsdóttir, fagstjóri eftirlauna og breytinga á lífeyrissviði LSR, fjallar um hvað ber að hafa í huga varðandi lífeyrissjóðsmál þegar styttist í starfslok, miðvikudaginn 13. mars. 
  • Apríl: Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir, fjallar um streitu og seiglu miðvikudaginn 17. apríl. Áhrif streitu og hvenær og hvernig hún gagnast okkur. 
  • September: Sigrún Birna Björnsdóttir Kaaber, sérfræðingur KÍ í vinnuumhverfis- og jafnréttismálum, fer yfir öráreiti og áreitni á fimmta fundi fræðslunefndar, 11. september. 
  • Október: Erindi verður kynnt síðar. 
  • Nóvember: Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur RÚV, fjallar um inngildandi orðræðu á sjötta og síðasta fundi ársins, miðvikudaginn 13. nóvember. 

Einnig verður lögð áhersla á fræðslu til nýrra kennara í starfi frá hausti í samstarfi við háskólasamfélagið. Þetta er nýjung í starfi KÍ sem vafalaust mun styðja við nýliða í sínum störfum. 

 



Stórviðburður í Hörpu 

Áherslur og afstaða kennara, stjórnenda og skólafólks til kennslu og skólastarfs verður í fyrirrúmi á viðamikilli ráðstefnu Kennarasambandsins sem fer fram í Hörpu, þriðjudaginn 9. apríl, undir yfirskriftinni er Skóli nútíðar — vegvísir til framtíðar: Rödd skólafólks skiptir máli. 

Góðir gestir flytja erindi fyrri hluta dags en aðalfyrirlesarar eru Alison Louise Milner, lektor við Álaborgarháskóla, ásamt fulltrúa frá Alþjóðasamtökum kennara, EI. Í kjölfarið kynnir Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands niðurstöður viðhorfskönnunar sem send var félagsfólki 1. febrúar og eftir hádegi taka við málstofur þar sem þau málefni sem helst brenna á félagsfólki, samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar, verða rædd.  

Gaman væri að sjá félagsfólk fjölmenna á ráðstefnuna í Hörpu í apríl

Ég hvet félagsfólk til að svara þessari stuttu en mikilvægu könnun svo vilji félagsmanna og væntingar til Kennarasambandsins endurspeglist með skýrum hætti í niðurstöðunum. Það tekur aðeins um 8-12 mínútur að svara. Gaman væri svo að sjá félagsfólk fjölmenna á ráðstefnuna. 

Skólamálaþing KÍ verður svo á sínum stað, fimmtudaginn 3. október, í Kennaravikunni sem fer fram dagana 30. október til 4. nóvember. 

Von okkar er sú að umfjöllun um skólamál og sú fræðsla sem stendur til boða bæði styrki kennara í starfi og kveiki áhugaverðar umræður í skólasamfélaginu. 

Jónína er einnig formaður framkvæmdastjórnar skólamálaráðs og fræðslunefndar KÍ.