Styrkir Vísindasjóðs FL og FSL hækkaðir
Fréttir|2. janúar 2023

Styrkfjárhæðir Vísindasjóðs FL og FSL vegna náms og kynnisferða innan Evrópu verða að hámarki 170.000 krónur frá og með 1. janúar 2023. Utan Evrópu verður styrkurinn mest 190.000 krónur.
125. fundur samstarfsnefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Félags leikskólakennara, sem haldinn var þriðjudaginn 20. desember, ákvað að hækka styrkfjárhæðir Vísindasjóðs FL og FSL í samræmi við tillögu frá stjórn sjóðsins.
Frá áramótum hækkar því styrkfjárhæð vegna náms- og kynnisferða innan Evrópu úr 140.000 krónum í 170.000. Styrkfjárhæð vegna náms- og kynnisferða utan Evrópu hækkar þá úr 160.000 krónum í 190.000 krónur.