Styrkir úr Sprotasjóði

Fréttir|13. janúar 2014

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla vegna skólaársins 2014-15. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.

Í 4 gr. reglugerðar nr. 242/2009 um Sprotasjóð leik-, grunn- og framhaldsskóla segir:
Leikskólastjórar, skólastjórar eða skólameistarar fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstakra kennara geta sent inn umsókn. Aðrir aðilar en skólar geta sótt um þróunarverkefni í samstarfi við skóla. Í þeim tilfellum skal staðfesting á þátttöku skóla fylgja umsókn.

Áherslusvið sjóðsins verða að þessu sinni:

  • Árangursríkt læsi alla skólagönguna: Að skilja og nýta upplýsingar á fjölbreyttan hátt.
  • Fræðin í verki: Verklegir kennsluhættir og mat á hæfni á öllum námssviðum.
  • Afburðanemendur.


Við mat á umsóknum verður skoðað hvernig verkefnin falla að hlutverki Sprotasjóðs ásamt því að markmið verkefnis séu skýrt fram sett, að verkefnisstjórn vel skilgreind, að raunhæfar kostnaðar-, verk- og tímaáætlanir séu lagðar fram, og að framlag samstarfsaðila sé tryggt og vel skilgreint. Umsóknir sem falla utan ofannefndra áherslusviða fá sérstaka umfjöllun í ljósi áhrifa verkefna á menntun og skólastarf. Fyrir skólaárið 2014 til 2015 verða til úthlutunar allt að fimmtíu milljón krónum.

Vakin er sérstök athygli á að umsóknir um styrki skulu vera á rafrænu formi. Sækja þarf um aðgang að umsóknavef Sprotasjóðs, www.sprotasjodur.is. Tekið verður á móti umsóknum frá 13. janúar til 28. febrúar 2014.

Nánari upplýsingar um Sprotasjóð veitir Sigrún Vésteinsdóttir, hjá Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri, í síma 460-8904 eða í tölvupósti á sv@unak.is.