Styrkir til náms- og þjálfunar í menntun
Fréttir|12. mars 2014
Stofnanir sem sinna menntun á öllum skólastigum geta sótt um ferða-, uppihalds- og námsstyrki fyrir nemendur og starfsfólk til að sinna námi, starfsnámi eða starfsþjálfun í einu af þátttökulöndum Erasmus+.
Áætlunin á við eftirfarandi hópa:
- Nemendur í starfsmenntun og á háskólastigi (nám og starfsnám á vinnustað).
- Starfsfólk leik-, grunn- og framhaldsskóla, stofnana og fyrirtækja til kennslustarfa eða starfsþjálfunar.
Nú er opið fyrir umsóknir um styrki til náms- og þjálfunarferða. Umsóknarfrestur í þennan flokk er 17. mars 2014 - klukkan 11:00 f.h.