Styrkir til endurmenntunar
Opnað hefur verið fyrir umsóknir úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla. Hlutverk sjóðsins er að veita fé til endurmenntunar kennara og stjórnenda grunnskóla. Þeir sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir kennara og stjórnendur grunnskóla geta sótt um framlög úr sjóðnum, þar á meðal grunnskólar, skólaskrifstofur, sveitarfélög, símenntunarstofnanir, félög, fyrirtæki og aðrir. Frestur til að sækja um styrk til verkefna vegna skólaársins 2015-2016 er til og með 1. júní 2015.
Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að allt að þriðjungi ráðstöfunarfjár verði úthlutað til verkefna sem tengjast eftirfarandi áherslusviðum:
- Náttúrugreinar
- Upplýsinga- og tæknimennt
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga, umsóknir sendar á öðru formi verða ekki teknar gildar. Ekki er tekið við viðbótargögnum og því verða allar upplýsingar að koma fram í umsókninni.