Styðjum við starf kennara

Fréttir|15. september 2014

Í viðtali við Morgunblaðið síðastliðinn laugardag fullyrðir Almar M. Halldórssonar, verkefnisstjóri PISA-könnunar hjá Námsmatsstofnun, að það sé lélegri kennslu um að kenna að Ísland dalar í niðurstöðum PISA prófa. Hann segir: „Kennslu í grunnskólum á Íslandi hefur hrakað síðan árið 2000, fátt bendir til annars“ og skellir þar með skuldinni á kennara. Ég vil fyrir hönd kennara mótmæla þessu og um leið framsetningu Morgunblaðsins sem sló málinu upp á forsíðu undir fyrirsögninni „Brýnt að bæta kennsluna“.

Það er fjöldi þátta sem hefur áhrif á hvernig nemendum gengur í skóla, PISA-könnun er ekki eini mælikvarðinn sem líta ber til. Að setja þetta fram með þessum hætti er mikil einföldun og vísa ég þessari framsetningu á bug. Skoða þarf hvers vegna flestar Norðurlandaþjóðirnar eru nú slakari en áður á PISA prófunum. Ég tek hins vegar undir með Almari þegar hann segir um kennara: „Það þarf að hlúa að þeim mannauði og efla hann markvisst.“

Nemendum líður vel

Miklar breytingar hafa verið gerðar í skólastarfi undanfarin ár sem enn eiga eftir að koma fram í mælingum sem þessum. Skólafólk er meðvitað um ákveðin vandamál í kerfinu og hefur leitað lausna. Rannsaka þarf meira áhrif mikils sjónvarpsáhorfs og tölvuleikjanotkunar á börn. Hvaða áhrif hefur það á nám? Einnig er verið að endurskoða framkvæmd stefnu um „skóla án aðgreiningar“ og hvernig best sé að haga stuðningi við nemendur sem eiga í námserfiðleikum.

Rannsóknir sýna að nemendum á Íslandi líður vel í skólanum. Mikill jöfnuður er milli skóla á Íslandi og sömu gæði allsstaðar. Bæði þessi atriði mælast með þessum hætti í PISA rannsókninni sem og rannsókn Sameinuðu þjóðanna á umhverfi barna á Íslandi.

Ég hafna því alfarið að hægt sé að skella skuldinni á kennara með þeim hætti sem gert er í Morgunblaðinu síðastliðinn laugardag og ég bendi á að málið er mun margþættara en að svo sé mögulegt, við búum í breyttu samfélagi og stefnumótun í skólastarfi hefur tekið breytingum síðastliðin ár. Ég er viss um að mjög margt af því sem við erum að gera í dag og höfum verið að gera undanfarin ár leiðir til betri niðurstöðu til framtíðar. Mögulega er þó eitthvað í stefnumótun síðustu ára sem þarfnast lagfæringar við og hafa þá kennarar oftast nefnt endurskoðun á framkvæmd um skóla án aðgreiningar eins og ég nefndi áður.

Kennarinn í lykilhlutverki

Menntamálayfirvöld þurfa að hlutast til um frekari rannsóknir á sviði skólamála. Rannsóknir sem miðast við íslenskan veruleika og út frá stefnumótun landsins í menntamálum. Brýnt er að hafa í huga að PISA-könnunin var gerð meðal 15 ára nemenda, sem í dag eru á 17. aldursári. Undanfarin ár er búið að gera heilmiklar breytingar í skólastarfi. Kennarasambandi Íslands hefur alltaf talað fyrir því að rannsaka þurfi þetta nánar og á okkar forsendum. Þörf er á því að fá bæði starfandi kennara og aðra sérfræðinga til að skoða málin.

Eitt sem ekki má gleymast í þessu samhengi er stuðningur heimilisins og foreldra við nám barna, það er mjög mikilvægur þáttur. Það eru því fjölmargir þættir sem hafa áhrif á hvernig barni gengur í skóla.

Að lokum, kennarinn er í lykilhlutverki í námi nemenda. Það þarf að styðja við starf kennarans með mun öflugri hætti en gert er í dag. Skólinn hefur mátt þola mikinn niðurskurð síðastliðin ár, það gengur ekki lengur. Auka þarf fjármagn í skólastarf og til rannsókna á því. Mikillar endurnýjunar er þörf á búnaði skóla, bæta þarf sérfræðiþjónustu og annan stuðning við skólahald en allt þetta hefur mátt þola niðurskurð og aðhald frá 2008. Skólafólk leggur mikinn metnað í störf sín og er mjög umhugað um árangur og námsframvindu nemenda sinna. Skapa þarf þeim viðunandi starfsumhverfi svo við Íslendingar getum gert góðan skóla enn betri.

Þórður Árni Hjaltested, formaður Kennarasambands Íslands