Stutt hlé á samingaviðræðum FG og sveitarfélaganna
Fréttir|20. maí 2014
Gert var hlé á viðræðum Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga klukkan 15.30. Fundi verður fram haldið klukkan 19 í kvöld. Ólafur Loftsson, formaður FG, segir að allt kapp verði lagt á að ljúka samningsgerð áður en til vinnustöðvunar grunnskólakennara kemur á morgun. Stíft hefur verið fundað síðasta sólarhringinn. Viðræður stóðu til klukkan eitt í nótt og var fundarhöldum fram haldið klukkan níu í morgun.