Stunda nám á eigin forsendum

Arnar Óskarsson og Engilbert Valgarðsson, kennarar við málaradeild Tækniskólans í Reykjavík, fjalla hér um verkefni sitt; Verkefnastýrt nám og reynsla nemenda af verkefnalýsingum og ítarefni. Verkefnið var styrkt af Rannsóknasjóði KÍ.
Markmið verkefnisins var að varpa ljósi á reynslu nemenda í málaradeild Tækniskólans af verkefnalýsingum og því ítarefni sem fylgja verkefnum málaranema í verkefnastýrðu námi.
Tilgangurinn er að þróa og bæta þær leiðbeiningar og ítarefni sem fylgja hverju verkefni með það fyrir augum að miða leiðbeiningarnar við hæfni og getu hvers nemanda og auka þannig gæði námsins og kennslunnar.
Sveigjanleiki í námi
Verkefnastýrða námið getur farið fram hvar sem er, en nemendur þurfa að hafa aðgang að hentugum rýmum og öllum þeim búnaði sem þarf til að leysa verkefnin. Til dæmis á vinnustöðum nemenda í fjarnámi sem eru að vinna hjá meistara í greininni.
Verkefnin geta nemendur einnig unnið á sínum forsendum í rýmum sem skólinn útvegar. Nemandinn hefur stjórnina þar sem hann getur haft áhrif á námsframvindu sína með vinnusemi og vinnuhraða. Hann getur farið hraðar yfir eða hægar eftir því sem hentar.
Nemendur fá úthlutað tíma í málarastofu og þar eru kennarar til aðstoðar og leiðbeina við verkefni. Nemendum er einnig frjálst að mæta á öðrum tímum en hafa þá takmarkaðan aðgang að kennara og þurfa sjálfir að skipuleggja hvernig þeir haga námi sínu.
Kennarar mæta nemendum
Kennarar í málaradeildinni hafa farið frá því að vera þeir sem stjórna námi nemenda yfir í að setja sig í spor nemenda, hvernig þeir læra, og leiðbeina þeim þar sem þeir eru staddir.
Kennarar eru með viðveru í stundatöflu svo nemendur vita hvenær þeir eru til taks. Við það að fara úr hefðbundnu áfangakerfi í verkefnastýrt nám hefur vinna verið lögð í að styrkja samtal í anda lærdómssamfélagsins með það að markmiði að allir séu að vinna að sama marki og hafi nám nemandans að leiðarljósi.
Kennarar í málaradeildinni hafa kynnt fyrirkomulag verkefnastýrðs náms, meðal annars á ráðstefnu um leiðsagnarnám sem haldin var í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ.
Um verkefnastýrt nám í málaraiðn
Innan Byggingatækniskóla Tækniskólans er starfrækt málaradeild. Málaranámið býður upp á fjölbreytta vinnu, útrás fyrir sköpunarhæfileika og mikil mannleg samskipti. Í náminu fá nemendur að takast á við alla algenga verkbætti iðngreinarinnar, allt frá mati á ástandi flatar og þar til æskilegri lokaáferð er náð.
Eftir nám í málaraiðn hafa nemendur aflað sér sértækrar þekkingar á sviðum greinarinnar ásamt því að hafa öðlast leikni í aðferðum og verklagi á þessu sérsviði. Hægt er að taka námið í hefðbundnu dagnámi eða með vinnu og þá í kvöldnámi eða í fjarnámi ef viðkomandi býr fjarri höfuðborgarsvæðinu.
Með nýju fyrirkomulagi í verkefnastýrðu námi í málaraiðn geta nemendur nú stundað námið á sínum forsendum.
Verkefnastýrt nám byggir á því að nemandi leysi verkefni á sínum hraða. Öll verkefni eru metin til eininga. Ætlast er til að nemandi skili lágmarkseiningafjölda á önn en hámarkið er ótakmarkað. Áhersla lögð á að nemandi nái að sýna fram á getu sína samkvæmt hæfniviðmiðum námsins en ekki að hann sitji hefðbundna áfanga.
Námstíminn er háður aðstæðum hvers nemanda. Nemendur sem hafa farið í raunfærnimat, og/eða lokið áföngum í eldra kerfi, fá það til styttingar, og nemendur sem hafa reynslu á vinnumarkaði geta fengið verkefni metin á móti.
Nemendamiðaðar kennsluaðferðir
Undanfarin ár hefur áhersla verið lögð á nemendamiðaðar kennsluaðferðir (e. learner centered). Verkefnastýrt nám fellur í þann flokk. Í verkefnastýrðu námi eru verkefnin þekkt, verkefnalýsingar skýrar og ítarefni tengd við verkefnin. Nemandinn beitir þekkingu og aðferðum sem hann hefur tileinkað sér til að ljúka verkinu og hefjast handa við það næsta.
Frá árinu 2018 hefur málaradeild Byggingatækniskóla Tækniskólans byggt á verkefnamiðuðu námi sem er nemendamiðuð kennsluaðferð þar sem nemandinn hefur stjórn á náminu.
Grunnurinn að aðferðinni er verkefni sem þarf að leysa, en nákvæmlega hvernig verkefnið er sett upp getur skipt máli varðandi það hversu nemendamiðuð aðferðin er. Það skiptir til dæmis máli hversu frjálsar hendur nemendurnir hafa við að leysa verkefnið, til dæmis, hvort þeir geta ráðið nálguninni sem þeir nota eða ekki (Kolmos, 2010; Ragnhildur Guðjónsdóttir, 2018).
Verkefnin sem nemendur fá til að leysa eru þannig að vitað er að hvaða markmiði er unnið, það er, lokaniðurstaðan er skýr frá upphafi. Fái nemendur til dæmis verkefnið að byggja brú, er lokaniðurstaðan gefin en ekki það hvernig brúin lítur út, úr hvaða efni hún er eða hvernig hún er hönnuð. Sömuleiðis verður alltaf til einhver afurð sem getur verið í mismunandi formi, það er, einhver hlutur eða skýrsla eða annað (Ragnhildur Guðjónsdóttir, 2018).

Megin þættir verkefnamiðaðs náms
Verkefnamiðað nám byggir á þremur megin þáttum: að námið sé háð efninu, nemendur séu virkir í lærdómsferlinu og nái markmiðum sínum með því að hafa samskipti við aðra og miðla þekkingu og skilningi sín á milli (Kokotsaki, Menzies og Wiggins, 2016).
Þá er talað um að verkefnamiðað nám gangi út á að beita og samþætta þekkingu sem nemandinn hefur öðlast áður (Savery, 2006). Einnig er oft gert ráð fyrir að verkefnin séu raunveruleg og krefjandi.
Verkefnamiðað nám getur flokkast undir nemendamiðaðar kennsluaðferðir. Það sem einkennir nemendamiðaðar aðferðir er að athyglin færist frá kennslunni og kennaranum yfir á námið og nemandann; aðferðir eru kenndar með dæmisögum, lausnarleit eða spurningum (Dole, Bloom og Kowalske, 2015).
Þegar skipuleggja á áfanga með nemendamiðuðum aðferðum þá eru það hæfniviðmið (e. learning outcomes) áfangans sem skipta mestu máli. Það hvaða leið nemandinn fer síðan til að ná tilskilinni hæfni getur verið mismunandi. Það er ekki kennarans að stjórna því heldur eingöngu skapa þær aðstæður að mögulegt sé fyrir nemendur að ná settu marki (Schreurs og Dumbraveanu, 2014).
Verkefni málaranámsins
Verkefni í málaranáminu eru 98 talsins. Nemandinn byrjar á verkefni 1 og vinnur sig áfram að verkefni 98. Öll verkefni þarf að klára og lágmark er að fá einkunnina fimm í hverju verkefni. Sautján verkefni eru bókleg, þrjátíu og eitt fagbókleg og fimmtíu verkleg.
Verkefnalýsing fylgir hverju verkefni og verkefnin eru öll á sama formi. Í verklýsingu er lýsing á framkvæmd verkefnisins, hvernig það er metið og hvernig skal skila verkefninu. Ítarefni eru myndbönd, glærukynningar, eyðublöð, vefslóðir og myndir sem tengjast verkefninu og nýtast við að leysa það. Einnig er í boði að skoða fyrirmynd af verkefninu, fá aðstoð frá kennara, samnemanda eða meistara nemandans.

Mynd 1. Verkefnalýsing
Nemendur vinna einir eða með öðrum. Þeir hafa aðgang að kennurum og samnemendum og svo geta meistarar nemenda sagt þeim til.
Dagnemendur fá tíma í stundatöflu í málarastofunni og er mætingarskylda í þá tíma. Þeir geta mætt á öðrum tímum en taflan gefur til kynna. Þó hafa þeir sem eru skráðir í tímann forgang ef lítið pláss er í stofu.
Kvöldnemendur kaupa sér aðgang að einu kvöldi frá 17:00 til 22:00, eða tveimur kvöldum eða þremur. Námið hentar vel með vinnu.
Fjarnemendur koma í fjórar lotur á önn. Hver lota er frá föstudegi á hádegi til sunnudags síðdegis sem hentar vel þeim nemendum sem búa ekki á höfuðborgarsvæðinu.
Ítarefnin sem fylgja verkefnum eru 98 verklýsingar, 42 myndbönd, 76 glærukynningar, 16 eyðublöð, 17 myndir, 8 spurningalistar og 29 bæklingar. Í boði eru fleiri gögn í efnisgeymslu á kennsluvef, sjá samantekt á mynd 2.

Mynd 2. Ítarefni með verkefnalýsingum
Um rannsóknina
Til að kanna hvernig verkefnalýsingar og ítarefni sem fylgja verkefnum nýtast og hvernig gæði náms eru tryggð í verkefnastýrðu námi, var spurningalisti lagður fyrir nemendur málaradeildar og viðtöl tekin við tíu nemendur. Einnig gáfu rannsakendur hegðun sinni og framkomu við nemendur meiri gaum.
Nemendur voru beðnir um að svara spurningalista þegar þeir skiluðu inn verkefnum á tímabilinu 19. september 2022 til 9. desember 2022, sjá mynd 3.
Spurt var hvaða gögn voru notuð til að leysa verkefnið. Spurt var um ítarefni sem er á skólavef og aðstoð og ítarefni sem ekki er inni á skólavef, eins og aðstoð frá kennara, samnemenda, meistara, veraldarvefnum eða fyrirmyndum sem voru skoðaðar.
Spurt var um þau áhrif sem verkefnið hafði á viðkomandi. Spurt var um hvort nemandi fyndi fyrir uppljómun eða ekki, ánægju eða ekki, hvort hann notaði þrautseigju eða ekki og hvort verkefnið hefði styrkt viðkomandi í faginu eða ekki. Einnig var spurt um hvort tilgangur verkefnisins væri skýr.
Spurningalistinn lá á því borði þar sem nemendur skila verkefnum. Könnunin var nafnlaus og svörin voru sett í lokaðan kassa. Nemendum var frjálst að taka þátt og þeir hvattir til að svara. Þegar kassinn var opnaður voru 127 svör.
Mynd 3. Spurningalisti
Ákveðið var að spyrja einnig nemendur um reynslu þeirra af verkefnastýrðu námi. Námsráðgjafi Tækniskólans valdi nemendur og tók viðtölin. Valdir voru tíu nemendur; tveir á fyrsta ári, tveir á öðru ári eða þriðja, tveir í kvöldskóla, tveir í fjarnámi og tveir á lokaári. Átti þessi hópur að gefa nokkuð góða mynd af nemendum í málaradeildinni.
Námsráðgjafinn nýtti skrifstofu sína í skólanum fyrir viðtölin sem tóku yfirleitt um 45 mínútur og voru tekin í desember 2022 og janúar 2023. Stuðst var við opinn viðtalsramma sem kennarar málaradeildar höfðu samið og fengu allir nemendur sömu spurningar. Viðtölin voru hljóðrituð og afrituð að þeim loknum. Fóru kennarar málaradeildar yfir svörin og þemagreindu. Nemendum var lofuð nafnleynd og ekki er hægt að rekja einstök svör til þeirra.
Niðurstöður rannsóknarinnar
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að nemendur nota oftast verklýsingar, fyrirmyndir, myndir, aðstoð frá kennara og samvinnu við lausn verkefna, sjá mynd 4.
Verkefnin eru oftast skýr, auka færni og veita ánægju. Það hefur áhrif á það hvernig nemendur vinna saman við að leysa verkefnin. Í gegnum verkefnin læra nemendur því ekki bara um iðnina, heldur einnig hæfni til að vinna saman, leysa vandamál og skapa sjálfstæða þekkingu. Könnun gerð af áfangastjórn Tækniskólans í febrúar 2022 styrkir þessa niðurstöðu.
Mynd 4 – Notkun verklýsinga, ítarefnis og annarrar aðstoðar
Meðal athugasemda sem birtist með svörum frá nemendum voru:
- „Eitt myndband virkaði ekki og þurfti að leita til kennara“
- „Erfitt og smá langt en samt gott“
- „Flott verkefni“
Niðurstöður spurningalistans gefa einnig til kynna að meiri hluti nemenda í málaradeildinni finni fyrir vellíðan og upplifi verkefnin sem gagnleg og áhugaverð, sjá mynd 5.
Meirihluti nemenda sýnir jákvæð viðhorf, finnur til ánægju, þroskast og styrkist í faginu. Hins vegar finnast nemendur sem leiðast og hafa óskýran tilgang með náminu. Þeir gætu þurft sérstaka athygli og stuðning.
Mynd 5 – Líðan nemenda í verkefnamiðuðu námi
Meðal ummæla á svarblöðum frá nemendum mátti sjá:
- „Bara muna gleðina“
- „Gleði og hamingja all over“
- „Alltof flókið“
Við skoðun á milli bóklegra, fagbóklegra og verklegra verkefna í málaraiðn voru niðurstöður svipaðar. Einnig á milli fyrstu 30 verkefnanna (byrjendur) og heildar niðurstöður eru svipaðar. Í bóklegum verkefnum var smá munur. Glærukynningar voru mikið notaðar við lausn verkefna og minni aðstoð frá kennurum og samnemendum.
Flestir nemendur eru ánægðir með hve fljótt er farið yfir verkefnin og endurgjöf veitt. Dæmi um svör nemenda;
- „Bara hæfilega, ég get ekki kvartað yfir því. Ég hef ekki þurft að ýta eftir einkunnagjöfinni“
- „Nú er einn kennarinn í leyfi og sumir fá einkunnirnar seint og aðrir snemma. Þeir fara ítarlega yfir verkefnin áður en maður fær einkunn“
Nemendur nýta kennara og hjálpargögn
Niðurstöðurnar gefa til kynna að nemendur nota bæði kennara og hjálpargögn sem fylgja verkefnunum til að leysa verkefni. Gagnlegt er að hafa aðgang að kennaranum til að fá aðstoð og útskýringar. Flestir nemendur vinna að lausn verkefna með öðrum nemendum. Þeir finna styrk og stoð í mannlegum samskiptum. Dæmi um svör nemenda;
- „Þá skoða ég þau hjálpargögn sem fylgja verkefnunum en það er mjög gott að ná í kennarann og þeir eru mjög hjálplegir“
- „Kennararnir segja oft það sem er ekkert í bók t.d. hvernig þú átt að beygja þig og vera beinn í baki, mörg lítil atriði sem hjálpar til“
- „Samnemendurnir og sýnishornin finnst mér nýtast mér best. Þegar maður er búin að skoða sýnishornin og þá er hægt að spyrja samnemendur hvernig á að gera þetta“
Einstaklingsmiðuð nálgun
Í heildina litið virðast nemendur hafa mismunandi viðhorf og kjósa að vinna einir eða með öðrum eftir því hvað þeim finnst þægilegra, hvernig verkefnið er skipulagt og hvaða undirstöðu þeir hafa. Dæmi um svör nemenda;
- „Í tölvuverkefnum sem eru t.d. verkmælingar og eru með stærðfræði finnst mér best að vera einn og sökkva mér í verkefnið, en i verklegu verkefnunum finnst mér betra að vinna með öðrum“
- „Þá er hægt að rökræða um starfsaðferðir og skiptast á skoðunum“
- „Mér finnst fínt að finna með öðrum, en ég get alveg unnið einn, en það er þægilegra að vinna með öðrum. Þá getum við rætt saman og fundið lausn ef upp koma vandamál varðandi verkefni í vinnunni“
Verkefnin ekki alltaf nægilega skýr
Út frá svörum nemendanna má lesa að verkefnin í málaraiðn eru ekki alltaf skýr og auðlesin. Nemendur gera oft ráð fyrir meiri upplýsingum, myndum eða sýnishornum til að skilja verkefnin betur. Sumir nemendur segja að verkefnin séu úrelt eða illa orðuð. Þeir eigi erfitt með að skilja hvað eigi að gera. Nemendur leggja áherslu á nákvæmari lýsingu og leiðbeiningar í verkefnunum. Þó eru þeir fleiri nemendurnir sem þykja verkefnin skýr og vel við hæfi. Dæmi um svör nemenda;
- „Já en það sem maður lærir í skólanum er frábrugðið því sem maður lærir á vinnumarkaði og meira um fínvinnu svo sem lakk og svoleiðis.“
- „Það er þetta með verklýsingar, verkmælingar og kostnaðarútreikning. Það mætti vera skýrara.“
- „Nei ekki alltaf – ég er að tala fyrir mína reynslu kannski eru verkefnin skýr fyrir aðra en ég á svolítið erfitt með að lesa leiðbeiningarnar og vita nákvæmlega hvað ég á að gera. Eina sem ég nýti er bara myndin. Les textann en veit ekki hvað á að gera. Fer til kennara og þeir segja mér hvað ég á að gera. Verkefnin eru ekki skýr fyrir mér. Ekki textinn. Ekki góður að skilja flókna íslensku.“
- „Það væri gott að fá verkefni sem er visst svæði til að vinna frá A til Ö, en það er kannski erfitt að koma því við. Svona raunverulegt verkefni. Tengja saman iðngreinar í byggingageiranum.“
Verkefnin þykja almennt skemmtileg
Nemendum finnst verkefnin yfir höfuð skemmtileg. Einn og einn nemandi upplifir að tíminn hafi flogið áfram í sumum verkefnum. Dæmi um svör nemenda;
- „T.d. í grunnteikningu þó ég sé hræðilegur í henni, finnst mér rosalega gaman að teikna.“
- „Það eru sérstaklega þau verkefni sem maður þarf að afla sér upplýsinga og skila í Word eða Power Point glærum, þau eru leiðinleg fyrir mig.“
- „Mér finnst verklegu verkefnin skemmtilegust.“
- „Bara gaman, en það er mikill munur á verklegum verkefnum og þeim sem þarf að vinna í tölvu. Verklegu verkefnin eru mikið skemmtilegri.“
- „Það voru marmaraeftirlíkingarnar, það var skemmtilegt og fræðandi.“
- „Já það var verkefni í verkmælingum og kostnaðarútreikningum.“
- „Auðvitað. Mörg verkefnin eru krefjandi. Sérstaklega það sem maður hefur aldrei gert áður, eins og marmaraeftirlíkingarnar og að draga beinar línur með strikpensli og nota málara striku og skrif stokk.“
- „Þau verkefni sem þurfa margar að komur, bíða eftir þurrki og sýna þolinmæði. Þetta er ekki leiðinlegt en þreytandi þegar þetta er farið að dragast á langinn.“
- „Sérstaklega skreytiverkefnin, að vinna með stensla og effect efni.“
Almenn ánægja með fyrirkomulag einkunnargjafar
Svör nemenda við einkunnargjöf eru mismunandi um notkun litakóða í stað talna. Lang flestir vilja hafa kerfið óbreytt. Einhverjir benda á að nauðsynlegt sé að fá útskýringu og ráðgjöf, hvort sem litakóði er notaður eða ekki. Dæmi um svör nemenda;
- „Já mín vegna, en mér finnst þetta gott eins og það er.”
- „Nei, þetta er gott eins og það er, tölur og umsagnir.“
Sumir nemendur hafa lagað verkefni og skilað aftur. Þegar þeir hafa gleymt lið og þurft að laga það og fengið betri einkunn. Þeir hafa einnig fengið ráðleggingar frá kennurum um að bæta verkefnin ef þau uppfylla ekki kröfur. Dæmi um svör nemenda;
- „Já, nokkrum sinnum. Sum verkefnin eru í nokkrum liðum þá hef ég átt það til að gleyma einhverjum lið og fengið skilaboð um það og lagað það og bætt einkunnina.“
- „Nei, ég hef ekki þurft þess. Ég skila ekki verkefni fyrr en ég er sáttur.“
- „Ég hef þurft að mála tvær umferðir en ætlaði að láta eina umferð duga.“
Þarfir nemenda mismunandi
Nemendur hafa mismunandi skoðanir á því hvort þeim finnst betra að vinna bókleg verkefni heima eða í skólanum. Sumir njóta þess að vinna heima án áreitis, en aðrir telja sig vera meira virka í skólanum því þeir hafa betra aðgengi að kennara. Dæmi um svör nemenda;
- „Í skólanum. Þar vinn ég frekar í verkefnunum, þar er allt til staðar. Þegar ég er að reyna þetta heima þá gerist ekki neitt, þar er annað sem grípur athyglina.“
- „Það er betra heima ef ég kemst í gírinn, það er minna áreiti , en í skólanum er betra að vera með músík í eyrunum til að losna við áreiti. Í skólanum er maður eingöngu að vinna í verklegum verkefnum.“
Niðurstöðurnar gefa til kynna að nemendur hafa mismunandi reynslu af náminu og áhuga. Umhverfið spilar inn í og þeir sem eiga erfiðara með að mæta í námið geta haft áhuga á að fá meiri aðstoð frá kennurum. Það er einnig áhugavert að athuga hvort fjarnámið og kvöldskólanámið séu hæfilega aðgengileg fyrir nemendur sem eru uppteknir á öðrum tíma eða hafa fjölbreytt áhugamál. Er hægt að bjóða nám sem fer eftir hentugleika hvers og eins? Dæmi um svör nemenda;
- „Ég kláraði menntaskólann og fór þá að vinna við málun og ákvað að læra þá iðn.“
- „Bara vel, mér líkar þetta kerfi og það mætti vera í fleiri greinum, ekki bara miða við 4 annir.“
Það eru mismunandi hugmyndir um hvaða tegund leiðsagnar nýtist nemendum best. Sumir vilja fá persónulega munnlega leiðsögn, en aðrir vilja fá skriflega leiðsögn og gagnrýni. Einhverjir vilja að kennararnir sýni þeim hvernig á að gera verkefnin, meðan aðrir vilja að kennararnir séu samstíga í mati þeirra á verkefnunum. Dæmi um svör nemenda;
- „Já ég geri það, það skiptir máli og þá sé ég hvað ég þarf að bæta.“
- „Bara tala við mig. Ef ég les eitthvað inni á Innu þá skil ég það ekki alltaf en þegar kennarinn segir mér hvað á að gera hér og það er best.“
- „Nei. Hún er góð, þar kemur fram hvað er ábótavant og maður reynir að gera betur næst.“

Niðurstöður spurningalistans gefa einnig til kynna að meiri hluti nemenda í málaradeildinni finni fyrir vellíðan og upplifi verkefnin sem gagnleg og áhugaverð
Eru verklýsingarnar og ítarefni nógu góð?
Í heild virðast nemendur ánægðir með ítarefni og hjálparefni sem fylgja verkefnunum, þótt það séu einhverjar óskir um að gera leiðbeiningar nákvæmari. Það má segja að nemendur nýti sér mismunandi hjálpargögn, þar á meðal kennara, samnemendur, myndbönd, Google og sýnishorn, til að leysa verkefnin. Nemendum finnst gott að hafa fyrirmyndir og að geta leitað aðstoðar hjá kennurum eða öðrum. Dæmi um svör nemenda;
- „Mér dugar að lesa leiðbeiningarnar, en líka myndir af fullgerðum verkefnum þannig að maður veit til hvers er ætlast, einnig eru vídeó sem eru örugglega mjög góð fyrir þá sem eru reynsluminni. Myndir hjálpa mest, án þeirra væri maður líklega í vandræðum.“
- „Mætti nota einfaldari orð ekki of smart, heldur orð sem allir skilja. Get ekki gefið dæmi en meiri texti gæti verið betra. Fólk sem er að byrja veit svo lítið.“
- „Já algjörlega. Það er örugglega erfitt að gera leiðbeiningar fullkomnar en mér finnst þær góðar og ef eitthvað er að vefjast fyrir mér þá spyr ég kennarann.“
Flestir sáttir við aðgengi að kennurum
Meirihluti nemenda telur að þeir fái nægan tíma með kennara og eru ánægðir með aðgengi að þeim. Þeir virðast einnig eiga gott samstarf með samnemendum og leita aðstoðar þegar þeir þurfa það. Dæmi um svör nemenda;
- „Já , oftar en ekki. Þó við séum margir nemendurnir og kennararnir bara 2, þá finnst mér ég fá nægan tíma.“
- „Já ég myndi segja það og ef kennarinn er upptekinn, þá geri ég eitthvað annað á meðan.“
Mismunandi skoðanir á aðstæðum í tímum
Sumir njóta þess að hafa tónlist sem hvetur þá og skerpir athyglina, en aðrir eru meira í sínum eigin tónlistarheimi með eitthvað í eyrunum eða finnst ekki skipta máli hvort tónlist sé í tímanum eða ekki. Dæmi um svör nemenda;
- „Já kennararnir setja reglulega tónlist á og þá dettum við flest í gírinn. Tónlistin virkar hvetjandi.“
- „Já það getur verið notalegt, en ég er oft með eitthvað í eyrunum.“
Nemendur voru spurðir hvað þeim fyndist um kennslustofuna. Dæmi um svör nemenda;
- „Hún mætti vera stærri. Mér finnst hún frekar þröng þegar maður er að vinna stærstu verkefnin.“
- „Mér finnst hún bara fín, með skápa og ég hef engan lás og engu stolið sem er næs. Mætti vera fleiri tölvur. Stundum eru allir í tölvunum. Kennslustofan er fín, ekki kalt né of heitt.“
- „Mér finnst hún litrík og skrautleg. Verkefni sem nemendur hafa gert eru hengd upp til að veita innblástur og sýna hvað er gert í þessum tíma. Eykur hugmyndaflug.“
Almenn ánægja með námsfyrirkomulagið
Niðurstöðurnar sýna að nemendur hafa mismunandi reynslu og skoðanir á námsfyrirkomulaginu í málaradeildinni. Flestir eru ánægðir, en sumum finnst vera pláss fyrir umbætur, sérstaklega hvað varðar verkfærakost og meiri kennslu. Dæmi um svör nemenda;
- „Það er gott að þetta fjarnám er í boði hér því þetta er ekki í boði úti á landi, en þetta er mikil keyrsla, og vont að missa úr staðlotu, það er erfitt að bera þetta saman við venjulegt dagnám.“
- „Ég er bara nokkuð sáttur.“
Iðnnám er félagslegt fyrirbæri þar sem maður lærir af manni
Samantekt og ályktanir
Það er mismunandi hvaða leiðsögn gagnast nemendum best. Sumir nemendur segja að þeim henti best að fá nákvæmar leiðbeiningar og aðstoð frá kennurum, meðan aðrir vilja vinna sjálfstætt og að læra af mistökum sínum. Einhverjir vilja hafa góða og skýra leiðsögn, en aðrir telja best að prófa og reyna sjálfir.
Gagnleg endurgjöf er þegar kennari bendir nemanda á það sem vel er gert og hvernig bæta má það sem betur má fara (Black og Wiliam, 1998). Nemendur mega lagfæra og bæta verkefnin og skila aftur.
Út frá sumum svörum nemendanna má lesa að verkefnin í málaraiðn eru ekki alltaf skýr og auðlesin. Nemendur gera oft ráð fyrir meiri upplýsingum, myndum eða sýnishornum til að skilja verkefnin betur. Sumir nemendur segja að verkefnin séu úrelt eða illa orðuð. Fleiri segja verkefnin skýr og vel við hæfi.
Black og William leggja áherslu á mikilvægi skýrleika verkefna í verkefnastýrðu námi. Skýrleiki verkefna felst í því að verkefnin séu raunveruleg og tengist lífi og veruleika nemenda. Verkefni sem eru skýr og áhugaverð að mati nemenda hafa jákvæð áhrif á námið og áhuga þeirra á því.
Black og William gagnrýna hefðbundna kennslu sem getur verið of abstrakt og fjarlæg frá daglegu lífi nemenda og leggja áherslu á nám sem er sem líkast vinnu á vinnumarkaði.
Iðngreinin tekur breytingum svo sem varðandi verkfæri, verklag og efni sem notuð eru. Eitt aðal hlutverk málara er að verja yfirborð og veðurfar og hitastig ýta undir breytingar.
Til að nálgast nemendur þarf að hafa í huga að niðurstöður rannsókna sýna að til að ná góðum árangri í endurgjöf þurfi kennari að sýna nemendum tilfinningalegan stuðning og velvilja, sem felst í því að framkalla jákvæðar tilfinningar hjá nemendum gagnvart náminu.
Verkefnin eru þau sömu fyrir alla en reynsla og verkkunnátta eru metin til eininga. Nemandinn byrjar þar sem hann er staddur í náminu. Iðnnám er félagslegt fyrirbæri þar sem maður lærir af manni. Í verklegri leiðsögn er verklagið útskýrt og sýnt. Nemandinn tekur svo við og prófar og fær leiðbeiningar við verklagið þar til viðkomandi hefur náð því. Það að kennari sýni samhygð, noti góða hlustun og sé hvetjandi og styðjandi og láti nemendur vita að þeir séu einhvers virði er lykillinn að góðu námi.
Við verkefni mætti bæta við fyrirmyndum og hafa myndbönd betur hönnuð. Orðalag í verklýsingum og útskýringum þurfa að vera auðskilin þó fagmálið verði haft með. Við fyrstu 30 verkefnin væri hægt að hafa minna af sérhæfðum orðum og nota einfaldar setningar til að nálgast yngri eða óreyndari nemendur. Einnig mætti kanna hvort kvöldnámið og fjarnámið séu nógu aðgengileg fyrir þá sem þurfa og hvort hægt sé að skapa tækifæri til náms sem hentar hverjum og einum.
Heimildaskrá
Black, P. og Wiliam, D. (1998). Assessment and Classroom Learning. Assessment in Education, 7-74.
Dole, S., Bloom, L. og Kowalske, K. (2015). Transforming Pedagogy: Changing Perspectives from Teacher-Centered to Learner-Centered. Interdisciplinary Journal of Problem-Based Learning, 10(1). doi:10.7771/1541-5015.1538
Kokotsaki, D., Menzies, V. og Wiggins, A. (2016). Project-based learning: A review of the literature. Improving Schools, 19(3), 267-277. doi:10.1177/1365480216659733
Kolmos, A. (2010). Reflections on Project Work and Problem-based Learning. European Journal of Engineering Education, 21(2), 141-148. doi:10.1080/03043799608923397
Ragnhildur Guðjónsdóttir. (2018). Verkefnastýrt nám. Kennslufræðileg tilraun Raftækniskólans á árunum 2011-2017. Óbirt meistararitgerð. Háskóli Íslands.
Savery, J. R. (2006). Overview of Problem-based Learning: Definitions and Distinctions. Interdisciplinary Journal of Problem-Based Learning, 1(1). doi:10.7771/1541- 5015.1002
Schreurs, J. og Dumbraveanu, R. (2014). A Shift from Teacher Centered to Learner Centered Approach. International Journal of Engineering Pedagogy (iJEP), 4(3). doi:10.3991/ijep.v4i3.3395
Tækniskólinn. (e.d.). Málaraiðn. https://tskoli.is/namsbraut/malaraidn/