Stuðningur við nemendur mikilvægur
Heimili og skóli – landssamtök foreldra harma að verkfall kennara sé skollið á. Samtökin hafa sent frá sér ályktun þar sem þau hvetja framhaldsskólakennara og ríkið til að einbeita sér að því að finna lausn á kjaradeilunni sem fyrst. „Mikið er í húfi fyrir nemendur og því mikil ábyrgð sem hvílir á deiluaðilum sem hafa nú haft langan tíma til að finna lausn á málinu,“ segir í ályktuninni.
Samtökin hvetja nemendur til að mynda námshópa og stunda nám sitt af kappi meðan á verkfalli stendur. Þá eru skólastjórar hvattir til að hafa skólana opna svo nemendur geti komið þangað til að læra.
Síðast en ekki síst er því beint til foreldra að þeir styðji við nemendur og hvetji þá til ástundunar í námi sínu. „Sýnt hefur verið fram á að jákvæðar og uppbyggjandi samræður foreldra við nemendur um námið hafa bein áhrif á árangur þeirra í námi,“ segir í ályktuninni.