Stuðningsyfirlýsing

Fréttir|21. febrúar 2025

Félag sérkennara á Íslandi skorar á ríki og sveitarfélög að ganga tafarlaust til samninga við kennara og afstýra þar með þeim verkföllum sem hafin eru og þeim verkföllum sem framundan eru og harmar þá niðurstöðu sem upp er komin í kjaraviðræðum.

Félag sérkennara á Íslandi skorar á ríki og sveitarfélög að ganga tafarlaust til samninga við kennara og afstýra þar með þeim verkföllum sem hafin eru og þeim verkföllum sem framundan eru og harmar þá niðurstöðu sem upp er komin í kjaraviðræðum. Stjórn félagsins lýsir yfir miklum vonbrigðum með að SÍS og íslenska ríkið hafi hafnað sáttatillögu ríkissáttasemjara, sem KÍ hafði samþykkt í þeirri von að leysa deiluna og koma í veg fyrir frekari röskun á skólastarfi.

FÍS undirstrikar að allir nemendur eiga rétt á menntun frá faglærðum kennurum sem njóta virðingar í samfélaginu. Því sé óásættanlegt að traustið milli kennara og viðsemjenda hafi ítrekað verið brotið og fyrri loforð um bætt kjör og starfsskilyrði hafi ekki verið efnd.

Í ljósi þessarar stöðu kallar stjórn FÍS eftir því að SÍS og stjórnvöld axli ábyrgð og komi að samningaborðinu með raunhæfar lausnir sem tryggja sanngjörn kjör og virðingu fyrir starfi kennara. KÍ ítrekar að án slíkra aðgerða sé hætta á áframhaldandi röskun á menntun nemenda og neikvæðum áhrifum á skólasamfélagið í heild.

FÍS hvetur forystufólk KÍ til áframhaldandi baráttu fyrir réttindum kennara og hvetur alla félagsmenn til að sýna samstöðu á þessum krefjandi tímum.

Stjórn Félags sérkennara á Íslandi