Streita, vinur í raun?

Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir, fjallaði um streitu og seiglu á fjórða fyrirlestri fundaraðar fræðslunefndar KÍ, sem fór fram á Teams í gær. Hægt er að nálgast upptöku af erindinu hér.
Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir, fór yfir hvað streita er, hvernig hún gagnast okkur og hvenær hún hættir að vera gagnleg. Undið var ofan af ranghugmyndum um streitu og rætt hvaða áhrif hún hefur á okkur, en rannsóknir sýna að streituþol eykst með nýrri sýn og auknum skilningi á streitu.
Fundurinn fór fyrst fram á Teams, miðvikudaginn 17. apríl og var endurtekinn miðvikudaginn 15. maí vegna tækniörðugleika. Hægt er að nálgast upptöku af erindinu hér.
Um fyrirlesarann
Kristín Sigurðardóttir er slysa-og bráðalæknir með heildræna sýn á heilsu. Hún hefur alla tíð sem læknir sinnt heilsueflingu, forvörnum og kennslu. Kristín er aðjúnkt við Læknadeild HÍ, kennir samskiptafræði við Læknadeildina og við Opna háskóla HR, ásamt því að sitja í Fræðslustofnun Læknafélags Íslands. Kristín er vinsæll fyrirlesari sem hefur fjallað um heilsutengd málefni á fjölmörgum vinnustöðum og ráðstefnum.
Hún rekur fyrirtækið Á heildina litið sem stendur reglulega fyrir námskeiðum og málþingum, þar sem einblínt er á líðan og heilsu, meðal annars hvernig hægt er að nýta streituna til góðs í síbreytilegu umhverfi og efla seiglu. Sem eru lykilatriði til að dafna í lífi og starfi.
FRÆ - fundaröð Fræðslunefndar KÍ
Fundurinn er hluti af fundaröðinni FRÆ, mánaðarlegum klukkustundalöngum Teamsfundum fyrir félagsfólk á vegum fræðslunefndar KÍ.
Fundaröðin hófst með fræðslufundum frá Brú lífeyrissjóði og LSR um samþykktar breytingar á reglum lífeyrissjóðanna. Í febrúar fjallaði dr. Valdís Jónsdóttir um raddheilsu. Í mars fjallaði Dísa B. Jónsdóttir hjá LSR um hverju þarf að huga að varðandi lífeyrismál við starfslok.
- Hér er hægt að nálgast allar upptökur af erindum FRÆ
Sigrún Birna Björnsdóttir Kaaber, sérfræðingur KÍ í vinnuumhverfis- og jafnréttismálum, fer yfir öráreiti og áreitni á fimmta fundi fræðslunefndar, 11. september. Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur RÚV, lýkur svo fundaröðinni með umfjöllun um inngildandi orðræðu miðvikudaginn 13. nóvember.