Stóri leikskóladagurinn er í dag
Fullt var út úr dyrum í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun þegar Stóri leikskóladagurinn var settur við hátíðlega athöfn. Á Stóra leikskóladeginum fer fram yfirgripsmikil kynning á starfi fjölda leikskóla. Hver leikskóli hefur sinn bás þar sem faglegt starf er kynnt með ýmsum hætti.
Hildur Skarphéðinsdóttir, skrifstofustjóri leikskólaskrifstofu Reykjavíkurborgar, setti Stóra leikskóladaginn og að því loknu tóku nemendur úr leikskólanum Hofi lagið. Auk kynningar á leikskólastarfinu eru fyrirlestrar í Iðnó þar sem fjallað er um leikskólastarfið frá ýmsum hliðum.
Sérstakir gestir á Stóra leikskóladeginum að þessu sinni eru leikskólar í sveitarfélaginu Árborg.
Að Stóra leikskóladeginum standa Félag leikskólakennara, Félag stjórnenda leikskóla, RannUng, Skólaþróun.is og skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar. Myndir frá opnuninni í morgun er að finna á Facebook-síðu KÍ.