Stóri leikskóladagurinn 29. maí
Stóri leikskóladagurinn verður haldinn í Ráðhúsinu og Iðnó föstudaginn 29. maí. Á Stóra leikskóladeginum kemur starfsfólk leikskóla saman til að kynna öll þau fjölbreyttu verkefni og hugmyndir sem unnið er að í leikskólum borgarinnar. Þetta er í sjöunda sinn sem þessi dagur er haldinn hátiðlegur. Akureyri er að þessu sinni gestasveitarfélag Stóra leikskóladagsins.
Hildur Skarphéðinsdóttir setur Stóra leikskóladaginn í Ráðhúsinu klukkan 8.30. Leikskólabörn munu skemmta gestum, klukkan 8.40 syngur Öldungakór leikskólans Miðborgar, klukkan 10.15 sýna börn frá leikskólanum Sunnuási atriði og eftir hádegi verður boðið upp á danssýningu barna úr leikskólanum Maríuborg.
Þá verða fyrirlestar í Tjarnarbíói allan daginn og margt áhugaverðra erinda sem þar verða flutt.