Störf í boði í Hveragerði

Fréttir|5. febrúar 2015

Við leikskólann Óskaland, Finnmörk 1, Hveragerði eru lausar stöður deildarstjóra. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingum sem eru tilbúnir að taka þátt í faglegu starfi leikskólans. Um er að ræða tvær 100% stöður frá 1.apríl n.k. til a.m.k . eins árs vegna fæðingaorlofa.

Að auki eru lausar stöður leikskólakennara en þær eru lausar eftir samkomulagi. Til greina kemur að ráða inn fólk með aðra menntun/reynslu fáist ekki leikskólakennarar.

Menntun og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennararéttindi
  • Sýni jákvæðni, frumkvæði og samstarfsvilja
  • Áhugi og hæfni í starfi með börnum
  • Góðir skipulagshæfileikar

Leikskólinn Óskaland starfar í anda Reggio Emilia. Verið er að innleiða ART þjálfun í leikskólanum. Nánari upplýsingar um leikskólann má lesa á heimasíðu leikskólans: oskaland.hveragerdi.is

Frekari upplýsingar veita Gunnvör Kolbeinsdóttir leikskólastjóri eða Guðlaug Jónsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma: 483-4139 eða í tölvupósti á netfangið: oskaland@hveragerdi.is

Umsækjendur sendi umsóknir á bæjarskrifstofu Hveragerðisbæjar Sunnumörk 2, 810 Hveragerði

Umsóknarfestur er til 20. febrúar n.k.

Umsóknareyðublöð má finna á vef Hveragerðisbæjar

Starfið hentar jafnt körlum sem konum og launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.