Stöndum vörð um tungumálakennsluna

Fréttir|17. júní 2015

Á Íslandi hefur verið rík hefð fyrir kennslu erlendra tungumála enda býður lega landsins og íbúafjöldi upp á það. Erlend tungumál voru meðal upphafsgreina sem kenndar voru við Háskóla Íslands 1911, bæði franska og danska. Tungumálanám opnar dyr fjölbreytileikans, kynnir nemendum ólíka menningarheima og gerir þá umburðarlyndari.

Undanfarin ár hefur orðið mikil aukning ferðamanna til landsins og nú kemur hátt í ein milljón ferðamanna til landsins á ári hverju. Tungumálakunnátta er nauðsynleg í ferðamannaiðnaði og til þess að kynna landið okkar erlendis. Á tímum enn frekari hnattvæðingar er einnig mikil þörf fyrir tungumálakunnáttu í alþjóðasamhenginu. Þýðingar sem slíkar eru nauðsynlegar fyrir okkar litla málsvæði en jafnframt styðja þær við og auðga móðurmálið okkar.

Það er langhlaup að læra erlend tungumál og rannsóknir á hæfni mannsheilans hafa sýnt að gott að er hefja tungumálanám mun fyrr en gert er í menntakerfinu. Lokamarkmið tungumálakennslu geta verið mismunandi, annars vegar er það les- og ritskilningur og hins vegar tjáning á erlenda málinu til daglegra nota eða í atvinnulífi. Rannsóknir sýna að betra er að kenna tungumál í fámennum hópum, sem gengur þvert á arðsemisstefnuna sem krafist er af skólakerfinu í dag.

Við viljum leggja áherslu á að nú þegar aðrar þjóðir auka vægi kennslu erlendra tungumála, til að auka samkeppnishæfni, er afar mikilvægt að við stöndum vörð um tungumálakennsluna. Þannig stöndum við einnig vörð um okkar eigin menningararfleifð, móðurmálið. Tungumálakunnátta opnar dyr að ólíkri menningu og dregur úr fordómum.

Tungumál eru lykillinn að framtíðinni.

Petrina Rós Karlsdóttir,
formaður STÍL – Samtaka tungumálakennara á Íslandi.